Auður í Afríku og systur hennar: Setja ætti skilyrði um þátttöku kvenna í öllum verkefnum
"Þar sem rík áhersla er nú lögð á eignarhald heimamanna á öllu þróunarstarfi má færa gild rök fyrir því að setja þurfi skilyrði um þátttöku kvenna í öllum þróunarverkefnum og á öllum stigum þróunarstarfsins," segja þær Þórdís Sigurðardóttir og Ágústa Gísladóttir í grein í ÞRÓUNARMÁl, upplýsingariti Þróunarsamvinnustofnunar.
Þórdís og Ágústa starfa báðar á aðalskrifstofu ÞSSÍ og hafa langa reynslu af þróunarmálum. "Sjónarhóll kvenna er í mörgum tilvikum annar en karla, þær hafa reynslu og þekkingu sem kemur úr annarri átt. Þær geta varið hagsmuni sína, lagt mat á hvað stendur í vegi fyrir sanngjörnum ávinningi þeirra af einstökum verkefnum og komið með lausnir," segir m.a. í greininni sem ber yfirskriftina "Auður í Afríku - og systur hennar".

Pósthólf 5330, 125 Reykjavík Heimilisfang: Þverholt 14 Sími: 545 8980 Bréfasími: 545 8985 Netfang: iceida@iceida.is