Svona er að búa í fátæku landi: Stefán Jón Hafstein skrifar frá Malaví
10.6.2010
Götumynd frá Malaví
Stefán Jón Hafstein umdæmisstjóri ÞSSÍ í Malaví dregur upp mynd af landinu þar sem hann býr í grein í upplýsingariti Þróunarsamvinnustofnunar sem fylgdi Fréttablaðinu í morgun. "Svona er að búa í fátæku landi" heitir greinin og hefst á þessa leið:
"Hvernig birtist fátækt í daglegu lífi í landi eins og Malaví? Götur höfuðborgarinnar eru skörðóttar og holóttar, þar eru gangstéttar fátíðar og götulýsing næstum engin. Byggðir eru dreifðar og mest kofar á mismunandi stigum, þótt sæmileg millistéttarhverfi birtist inni á milli. Símkerfi virkar illa, rafmagnsskortur setur svip á daglegt líf, enda er heildarframleiðsla í 13 milljóna manna landi minni en nemur hálfri Kárahnjúkavirkjun; sex prósent íbúa hafa aðgang að rafmagni.
Vegir eru slæmir, lítill bílafloti heimamanna einkennist af hræjum sem varla eru ökufær og umferðarslys eru með því mesta sem um getur í heiminum. Aðkomumaður tekur strax eftir hve vélvæðing er skammt komin, fólk gengur langar leiðir með byrðar eins og vatn og eldivið, eitt reiðhjól ber fjögurra manna fjölskyldu eða hlaða af kolapokum. Heimili alls þorra fólks eru leirkofar með stráþökum þar sem getur verið langt í næsta vatnsból og hreinlætisaðstaða lítil sem engin. Þótt fólk sé almennt hreinlegt eru fötin slitin og skór þess þættu óvíða boðlegir, enda margir berfættir. Konur klæðast mikið litríkum lendaklæðum en samsetning hjá hinum almenna karlmanni minnir mest á flóamarkað."