Ársskýrsla 2009: Samstarfsþjóðum Íslendinga fækkaði um tvö á árinu 2009

23.6.2010

Arsskyrsla2009
Ársskýrsla ÞSSÍ 2009 er komin út

Ársskýrsla Þróunarsamvinnustofnunar Íslands fyrir árið 2009 er komin út. Hún er gefin út bæði á íslensku og ensku og greinir ítarlega frá starfseminni í samstarfslöndum Íslands í tvíhliða þróunarsamvinnu.

Samstarfsþjóðum Íslendinga fækkaði um tvö á árinu 2009, en sökum niðurskurðar í framlögum til Þróunarsamvinnustofnunar Íslands á árinu og gengisfalls íslensku krónunnar var ákveðið að hætta þróunarsamvinnu við Srí Lanka og Níkaragva. Umdæmisskrifstofu ÞSSÍ og sendiráði Íslands í Kolombó, Srí Lanka, var lokað í júlí, en þá hafði öllum verkefnum verið lokið og Ísland staðið við allar sínar skuldbindingar gagnvart stjórnvöldum. Umdæmisskrifstofu ÞSSÍ og sendiráði Íslands í Managva, Níkaragva, var formlega lokað í ágúst. Íslendingar munu þó virða skuldbindingar sínar um samstarf við stjórnvöld í Níkaragva um jarðhitamál fram til 2012, en þá lýkur samningstímanum.  

ÞSSÍ ráðstafaði 1.747,8 milljónum íslenskra króna árið 2009 sem er um 11% samdráttur milli ára ef miðað er við íslenskar krónur, en ef miðað er við Bandaríkjadali, gjaldmiðilinn sem ÞSSÍ notar í starfsemi sinni í samstarfsríkjunum, nemur samdrátturinn 37%. Heildarframlög Íslands til þróunarsamvinnu námu 0,33% af VÞT árið 2009 og nam hlutdeild ÞSSÍ 41% af þeirri upphæð.  

Malaví er enn það samstarfsland ÞSSÍ sem fær mestan stuðning með 23% af heildarframlögum stofnunarinnar eða um 396 milljónir króna. Úganda fylgir næst á eftir með 21% heildarframlaga, eða tæpar 374 milljónir króna. Framlög til Namibíu námu 290 milljónum króna (17%), 203 til Mósambíkur (12%) og 189 til Níkaragva (11%). Um 5% framlaga, eða 92 milljónir króna fóru til Srí Lanka og 85 milljónir króna fóru til annarrar þróunaraðstoðar (5%). Útgjöld á aðalskrifstofu námu rúmum 118 milljónum og þar með 7% heildarframlaga ÞSSÍ.

Milli áranna 2008 og 2009 varð ekki veruleg breyting á skiptingu framlaga eftir málaflokkum. Um helmingur framlaganna fór til mennta- og fiskimála, þar af 28% til menntamála og 20% til fiskimála.

Ársskýrsluna má nálgast á rafrænu formi hér á heimaíðunni eða á skrifstofu ÞSSÍ. 



Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica