Þora ekki að fara í alnæmis próf
Eiginmenn hóta barnshafandi eiginkonum skilnaði eða hefndum
Minnihluti barnshafandi kvenna í Úganda, sem er eitt af samstarfslöndum ÞSSÍ, þorir að fara í alnæmispróf af ótta við refsingu eiginmanna. Mörg dæmi eru þess að þeir hóti eiginkonum sínum skilnaði vilji þær fara sjálfviljugar í alnæmispróf. Meira en 1 milljón íbúa í Úganda er smituð af alnæmi og talið er að um 100 þúsund manns hafi látist af völdum sjúkdómsins á síðasta ári.
Alnæmi er eins og kunnugt er eitt af alvarlegustu heilsufarsvandamálum í Afríku ríkjum sunnan Sahara. Fólk á aldrinum 15-49 ára er hættast við smiti en það er einmitt sami hópur og er hvað öflugastur á vinnumarkaði. Það eru engin ný sannindi að alnæmið hefur alvarlegar efnhags- og samfélagslegar afleiðingar. Fólk sem starfar við þróunaraðstoð kynnist því í daglegu starfi sínu. Starfsmenn ÞSSÍ hafa ítrekað orðið fyrir því að samstarfsaðilar í kennslu, heilsugæslu- eða félagslegum verkefnum sýkist, veikist og láti að lokum lífið af völdum sjúkdómsins.
Á alþjóðlegri ráðstefnu um alnæmi sem haldin var í Kampala höfuðborg Úganda í gær, mánudag, kom fram að í sumum héruðum væri hlutfall sýktra að hækka í stað þess að lækka þrátt fyrir gífurlegt upplýsingaflæði til heimamanna. Fram kom að í sveitum landsins þora einungis um 5% kvenna að fara sjálfviljugar í alnæmispróf, hinar óttast refsingu frá eiginmanni sínum en margir hafa hótað barnshafandi eiginkonum skilnaði láti þær framkvæma prófið. Talið er að um 6% barnshafandi kvenna séu smituð.
Um 1 milljón íbúa í Úganda hafa látist úr alnæmi frá því sjúkdómurinn uppgötvaðist fyrst fyrir rúmum 20 árum. Rúm milljón er talin vera með sjúkdóminn nú þar af hafa um 100 þúsund manns brýna þörf fyrir lyfjagjöf. Aðeins um fjórðungur þeirra fær nauðsynlega meðferð. Góðu fréttirnar eru hins vegar þær að þrátt fyrir allt hefur Úganda búum tekist að lækka hlutfall smitaðra sé tekið mið af landinu öllu.
Byggt á grein á www.allAfrica.com



125 Reykjavík Heimilisfang: Þverholt 14 Sími: 545 8980 Bréfasími: 545 8985 Netfang: iceida@iceida.is