Umdæmisstjóraskipti í Mósambík og Úganda

25.6.2010

Opinbert gæðaeftirlit
Stuðningur við fiskimál
Meðal verkefna umdæmisstjóra í Mósambík og Úganda er yfirumsjón með stuðningi stofnunarinnar við stjórnvöld landanna í viðleitni þeirra til að byggja upp opinbert gæðaeftirlit með sjávarfangi.

Í júní áttu sér stað skipti á umdæmisstjórum í tveimur samstarfslöndum ÞSSÍ, Mósambík og Úganda. Af aðalskrifstofu fluttist Ágústa Gísladóttir úr starfi sviðsstjóra fiskimála og tók við starfi umdæmisstjóra í Mósambík. Hún tók við af Margréti Einarsdóttur sem flyst á aðalskrifstofu og mun gegna starfi sviðsstjóra félagslegra verkefna. Gísli Pálsson hefur tekið við sem umdæmisstjóri í Úganda en hann gegndi áður starfi sviðsstjóra félags- og orkumála á aðalskrifstofu. Hann tók við af Árna Helgasyni sem flyst yfir á aðalskrifstofu og tekur við starfi sviðsstjóra fiskimála.

Umdæmisstjórar hafa yfirumsjón með öllum verkefnum Þróunarsamvinnustofnunar í viðkomandi samstarfslandi og stýra umdæmisskrifstofunum sem jafnframt eru sendiskrifstofur Íslands.



Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica