Umdæmisstjóri ÞSSÍ í fylgdarliði forseta Mósambíkur um afskekktar byggðir
Ágústa Gísladóttir umdæmisstjóri Þróunarsamvinnustofnunar Íslands í Mósambík var fyrir skömmu á ferð um afskekktar byggðir landsins í föruneyti Gebuza forseta Mósambíkur. Forsetinn hefur það fyrir sið á hverju ári að heimsækja nokkur sveitarfélög innan þeirra tíu fylkja sem eru í landinu. Föruneyti forsetans er skipað framámönnum flokksins í hverju fylki, ráðherrum og sérstökum ráðgjöfum forsetans, en einnig er að sögn Ágústu sendifulltrúum vinaþjóða boðið sæti í fylgdarliðinu í „nafni gegnsæis” og auk hennar voru í ferðinni sendiherra Alsír og forstöðukona þróunarskrifstofu Austurríkis.
Ágústa segir frá:
„Forsetinn notaði þyrlur til að komast fljótt og vel á milli áfangastaða enda fylkið víðfeðmt (68 þúsund ferkílómetrar), en fylgdarliðið þeyttist um á fjórhjóladrifnum bílum. Undirrituð lenti í hópnum sem lengst þurfti að aka. Við hófum ferðina í Beira og var fyrsti fundurinn í Gorongosa héraði í vestur hluta fylkisins. Þaðan héldum við til Chemba lengst í norðri og aftur suður til Muxungue en alls ókum við 1500 km á þessum 4 dögum. Stundum lentu ráðamenn afskekktustu sveitarfélaga í vandræðum með finna samastað fyrir alla þessa gesti en það vantaði ekkert upp á viljann og gestrisnina. Yfirbragð ferðarinnar var tiltölulega óformlegt og afslappað og gaf fosetinn sér góðan tíma til að heilsa heimamönnum. Samkvæmt þjóðtrú heimamanna þótti það bera með sér gæfu að á hverjum degi heimsóknarinnar rigndi dálítið.
Einn nemandi – eitt tré
Blásið var til aukafunda fylkisstjórnarinnar og yfirstjórna viðkomandi sveitarfélaga (p. posto administrativo) þar sem árangur síðasliðins árs var kynntur og ræddur og fengu gestirnir að vera viðstaddir kynninguna. Auk umfjöllunar um heilbrigðis- og menntamál vakti athygli mína sérstak átak (forsetans) sem heitir “einn nemandi eitt tré” þar sem á hverju ári skal planta trjám sem annað hvort gefa skugga eða bera ávexti. Gebuza forseti plantar tré í hverju sveitarfélagi sem hann heimsækir.
Haldnir voru líka fjöldafundir, þar sem heimamenn skemmttu gestunum og komu málefnum sínum á framfæri. Auk formlegra erinda viðkomandi sveitarfélags bauð forsetinn líka fulltrúum almennings að koma upp á svið og tala um það sem þeim væri efst í huga. Fólkið var ótrúlega opinskátt – kvartaði m.a. yfir héraðsyfirvöldum ef þess var þörf. Þróunarsjóð héraðanna bar oft á góma en hvert hérað fær árlega í hendur 20 þús. Bandaríkjadollara til að lána íbúunum til raunhæfra verkefna sem ætlað er að skapa ný störf eða til að auka landbúnaðarframleiðslu. Ýmiss vandamál hafa skotið upp kollinum við útfærslu verkefnisins og fáum tekist að borga lánið til baka. Heimsókn forsetaembættisins til hins afskekkta Chiramba sveitarfélags í Chemba héraði var sú fyrsta frá sjálfstæði landsins. Sem dæmi má nefna að Chembabær tengdist loksins lands(rafmagns)-netinu á síðasta ári, framkvæmd sem fjármögnuð var af Norðmönnum og Svíum.
Forsetinn sjálfur talaði mest um fátæktin í landinu, og viðhorfsbreytinga sem væri þörf til að vinna gegn henni, skógrækt og grænu byltinguna sem væri í farvatninu. Hann sagðist ennfremur vera kominn á staðinn til að hlusta á almenning í stað þess að messa yfir þeim. Gestirnir voru sammála um að svona ferðir gæfu þeim einstakt tækifæri til að kynnast aðstæðum og málefnum fólks á landsbyggðinni.”
Myndir úr ferðinni: efri myndin frá mótttöku forsetans og á neðri myndinni er Gebuza með Ágústu, Ahmed Lakhdar Tazir sendiherra Alsír og Evu Kohl forstöðukonu þróunarskrifststofu Austurríkis.




125 Reykjavík Heimilisfang: Þverholt 14 Sími: 545 8980 Bréfasími: 545 8985 Netfang: iceida@iceida.is