Áttatíu og fimm leikskólaleiðbeinendur hafa lokið námi fyrir áramót í Namibíu

13.8.2010

Áhersla á leiðbeinendur í leikskólum
Áhersla á leiðbeinendur í leikskólum
ÞSSÍ hefur stutt við uppbyggingu leilkskólamála í Namibíu og síðasti hópur leikskólaleiðbeinenda lýkur námi fyrir áramót. Ljósmyndir: Davíð Bjarnason.

 

Þróunarsamvinnustofnun Íslands hefur síðastliðin tvö ár stutt við uppbyggingu leikskólamála í Namibíu og lagt áherslu á þjálfun leiðbeinenda í leikskólum. „Raunar stóð til að sá stuðningur yrði mun umfangsmeiri en í kjölfar hrunsins varð ljóst að einungis væri hægt að veita mjög takmarkaðan stuðning við málaflokkinn," segir Davíð Bjarnason verkefnastjóri félagslegra verkefna í Namibíu.
 
Davíð segir að vart þurfi að fjölyrða um mikilvægi leikskólamenntunar, í leikskólum sé lagður grunnur að þroska barna, menntun þeirra og velferð síðar í lífinu. „Flest þróunarlönd hafi í viðleitni sinni til að ná markmiðum Menntunar fyrir alla (MFA) og Þúsaldarmarkmiða, lagt megináherslu á aðgengi barna að grunnskólamenntun. Á það hefur verið bent í MFA úttektarskýrslu UNESCO frá 2007 að leikskólamenntun leggi grunninn að öllum öðrum markmiðum um menntun, ásamt því að stuðla að framgangi þúsaldarmarkmiðanna. Hins vegar er það svo að þróun leikskólamála hefur lítið verið sinnt í þessu samhengi. Undirstöður frekari menntunar barna í þróunarlöndum er því víða mjög ábótavant," segir hann.
 
Þjálfun leiðbeinanda í leikskólum er megináherslan í stuðningi Íslendinga að sögn Davíðs, enda er geta þeirra og þekking lykilþáttur í starfi hvers leikskóla. Alls hefur ÞSSÍ stutt við þjálfun 85 leiðbeinenda í samstarfi við ráðuneyti barna- og jafnréttismála í landinu, 60 þeirra hafa lokið þjálfuninni og 25 munu ljúka í desember á þessu ári.
 
Í námskeiðinu sem er 12 vikur er lögð er áhersla á grundvallarþætti í umönnun barna og þroska, ásamt því að kenna hagnýtar leiðir til leikja og leikfangagerðar úr endurunnu efni þegar hefðbundnum námsgögnum og leikföngum er ekki til að dreifa. Davíð segir að flestir af þátttakendunum séu konur úr sveitahérðum Namibíu, sem reka sína eigin leikskóla en hafa litla sem enga menntun. Námskeiðið er viðurkennt af menntamálaráðaneytinu í Namibíu og veitir það þátttakendum möguleika til frekari menntunar á þessu sviði. Davíð nefnir ennfremur að 10 heyrnarlaus ungmenni hafi lokið náminu og ætlunin sé að þau komi að starfi með heyrnarlausum börnum í sinni heimbyggð. Einnig stunda nú 20 konur af ættflokki Ovahimba eins árs nám í leikskólamálum með stuðningi frá ÞSSÍ.

 
ÞSSÍ hefur einnig stutt við gerð námsgagna fyrir framgang leikskólamála í Namibíu svo og byggingu leikskóla fyrir San fólk í þorpinu Tsintabis í norður Namibíu.


 



Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica