Táknmálsnám í boði við háskólann í Namibíu
Nú er orðið ljóst að frá og með næstu áramótum verður nám í táknmáli í boði við Háskólann í Namibíu. „Já, þessi mikilvægi áfangi hefur nú verið staðfestur af háskólaráði skólans,” segir Davíð Bjarnason verkefnisstjóri félagslegra verkefna á umdæmisskrifstofu ÞSSÍ í Namibíu. Hann segir að eitt af meginmarkmiðum stuðnings ÞSSÍ við menntun heyrnarlausra hafi beinst að þróun og viðurkenningu namibíska táknmálsins. Kennsla í táknmáli við háskólann sé viðurkenning á mikilvægi táknmálsins í menntun heyrnarlausra barna og í namibísku samfélagi.
Frá byrjun árs 2009 hefur táknmálsnám verið í boði við Kennaraskólann í Windhoek, en skólinn hefur nú verið sameinaður háskólanum. Í kjölfar sameiningar hófst markviss vinna til að tryggja að táknmálsnám yrði áfram í boði á menntavísindasviði. Meðal annars heimsóttu tveir starfsmenn kennaraskólans Ísland heim til að kynna sér hvernig náminu væri háttað við Háskóla Íslands. Davíð segir að sú heimsókn hafi skilað miklum ávinningi og námið sé að hluta til byggt á íslenskri fyrirmynd. Að sögn hans er nú verið að þróa námsskrá og að sérfræðingar frá Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra á Íslandi komi að þeirri vinnu.
Táknmálsverkefni ÞSSÍ í Namibíu mun, eins og öðrum verkefnum þar í landi, ljúka í lok ársins. „Mikilvægt er að deila með aðilum sem starfa að menntamálum heyrnarlausra þeim lærdómi sem draga má af verkefninu,” segir Davíð. „Hluti af þeirri viðleitni var kynning á verkefninu á alþjóðlegri ráðstefnu, International Congress on the Education of the Deaf í Vancouver í júlí síðastliðnum. Ráðstefnan er haldin á fimm ára fresti og þar koma saman allir helstu aðilar er láta sig menntamál heyrnarlausra varða. Eitt af meginþemum ráðstefnunar voru þau margþættu vandamál sem þróunarlönd standa frammi fyrir í menntun heyrnarlausra.”
Davíð segir ljóst að það starf sem Íslendingar hafi unnið í Namibíu sé að mörgu leyti sérstakt í alþjóðlegu samhengi þar sem markvisst hafi verið unnið með stjórnvöldum að uppbyggingu málaflokksins. Hann bendir á að þótt málefni fatlaðra hafi fengið aukið vægi í þróunarsamvinnu hafi málefnum heyrnarlausra lítið verið sinnt sérstaklega. Hins vegar sé staða þeirra í Afríku víðast hvar keimlík. „Réttindi og aðgangur þeirra að þjónustu samfélagsins er í lágmarki og þeir tilheyra í raun algerum jaðarhópi. Ljóst er að víða væri hægt að leggja lið í þessu sambandi. Í kjölfar ráðstefnunnnar verður skrifuð grein um táknmálsverkefnið í Namibíu þar sem gerð verður ítarleg grein fyrir markmiðum, árangri og áskorunum verkefnisins,” segir Davíð.




Rauðarárstígur 27, 125 Reykjavík, sími: 545 8980 Bréfasími: 545 8985 Netfang: iceida@iceida.is