Bylgja framfara í málefnum heyrnarlausra í Namibíu verður ekki stöðvuð

- vel heppnaðri ráðstefnu um menntun heyrnarlausra nýlokið

27.8.2010

Vel heppnuð ráðstefna um málefni heyrnarlausra
Vel heppnuð ráðstefna um málefni heyrnarlausra
Vilhjálmur Wiium umdæmisstjóri ÞSSÍ í Namibíu og og Alfred Ilukena ráðuneytisstjóri menntamála í Namibíu.

„Samstarfsverkefni undanfarinna ára hefur komið af stað þvílíkri bylgju framfara í málefnum heyrnarlausra að hún verður vart stöðvuð. Þegar er ábyrgð margra þátta verkefnisins komin í hendur namibískra stofnana og samtaka,” sagði Vilhjálmur Wiium umdæmisstjóri Þróunarsamvinnustofnunar Íslands í lok tveggja daga ráðstefnu í Namibíu um menntun og atvinnumál heyrnarlausra. Hann hafði þá verið inntur eftir því hvort framfarir í málefnum heyrnarlausra myndu stöðvast þegar þróunarsamvinnu Íslendinga og Namibíumanna lýkur um næstu áramót.

Ráðstefnan var hluti af samstarfsverkefni ÞSSÍ og menntamálaráðuneytis Namibíu. Verkefninu, sem staðið hefur yfir frá 2007, lýkur í árslok og á ráðstefnunni var meðal annars litið yfir farinn veg og metið hversu vel hefði tekist að ná þeim markmiðum sem upphaflega voru sett. Megintilgangurinn var þó að ræða atvinnumál heyrnarlausra í landinu og leggja fram tillögur um hvernig auka mætti atvinnutækifæri þeirra.

Vilhjálmur ávarpaði ráðstefnugesti, tæplega 100 talsins, og gerði grein fyrir helstu áföngum sem náðst hafa á undanförnum árum. „Ég nefndi sem dæmi að heyrnarlausum framhaldsskólanemum nú veitt túlkaþjónusta í almennum framhaldsskóla, en áður fyrr höfðu heyrnarlausir ekki tækifæri á að ljúka stúdentsprófi,” segir Vilhjálmur. „Heyrnleysingjaskólar landsins bjóða nefnilega ekki upp á síðustu tvö ár náms til stúdentsprófs. Einnig eru um 40 kennaranemar skráðir á táknmálssvið í sínu kennaranámi. Þegar þeir fyrstu úr þeim hópi fara að kenna árið 2012 verða vatnaskil í menntun heyrnarlausra. Það verður í fyrsta sinn í Namibíu sem kennarar heyrnarlausra hafa menntun í táknmálsfræðum áður en þeir hefja kennslustörf.”

Grein um ráðstefnuna (pdf)



Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica