Börn náttúrunnar á kvikmyndahátíð í Malaví

23.9.2010

Börn náttúrunnar
Börn náttúrunnar
Kvikmynd Friðriks Þórs verður sýnd á kvikmyndahátíðínni í Malaví.

Börn náttúrunnar, kvikmynd Friðriks Þórs Friðrikssonar, verður sýnd á kvikmyndahátíð í Malaví sem er að hefjast. Þetta er önnur kvikmyndahátíðin sem haldin er í landinu. Ekkert kvikmyndahús er í höfuðborginni Lilongwe en kvikmyndirnar verða sýndar á uppblásnum skermi á útileikvangi i stærstu borg landsins, Blantyre, sex hundruð kílómetra frá höfuðborginni. Á fyrstu kvikmyndahátíðinni í fyrra var hátíðin helguð heimildakvikmyndum og þá lánaði Páll Steingrímsson eintak af mynd sinni „Vatn” til sýninga.

„Frumkvæði kemur frá heimamönnum en þeir njóta aðstoðar og styrkja frá nokkrum erlendum sendiráðum og þróunarsamvinnustofnunum. Ísland hefur stutt framtakið frá upphafi með því að hlutast til um að fá íslenskar kvikmyndir til sýninga á hátíðinni. Í ár eru leiknar myndir á dagskrá og Friðrik Þór Friðriksson lánaði Börn náttúrunnar til sýninga,” segir Stefán Jón Hafstein umdæmisstjóri Þróunarsamvinnustofnunar Íslands í Malaví.

Úrval mynda í ár er all fjölbreytt að hans sögn og margar myndir sýndar frá Afríkuríkjum. Hann segir það auka talsvert á breiddina að fá íslenskar myndir.  „Finnar styðja þetta myndarlega, ásamt nokkrum öðrum, og þótt við leggjum ekki fé til hátíðarinnar þá er framlagið frá þeim Páli og Friðriki Þór metið," segir Stefán Jón.

Á hátíðinni í ár er sýnd stuttmynd sem ungir malavískir kvikmyndagerðarmenn gerðu í framhaldi af námskeiði sem haldið var í tengslum við hátíðina í fyrra. „Ég tók þátt í námskeiðinu í fyrra með stuttum fyrirlestri um útgáfumöguleika á netinu, sem er nokkuð sem ekki hefur verið vakin athygli á hér. En kvikmyndamenning er ekki mikil í Malaví, einungis örfáar stuttar heimildamyndir hafa verið gerðar og það af vanefnum. Malaví er mjög langt á eftir í þessum efnum, því miður," segir Stefán Jón. „Það er hins vegar eftirtektarvert að núna þegar frumsýnd er fyrsta stuttmyndin eftir námskeiðið í fyrra skuli nemendur hafa valið ákaflega viðkvæmt og umdeilt mál hér í landi, stöðu samkynhneigðra. Það er ekkert hik á þessu unga fólki," bætir hann við.

 



Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica