Bretar setja 12 milljarða í heilbrigðisþjónustu í Malaví

Heilbrigðisástand í landinu með því bágbornasta sem gerist í heiminum

10.12.2004

Heilbrigðisyfirvöld í Malaví munu fá 100 milljónir breskra punda, samsvarandi um 12 milljarða íslenskra króna, frá bresku Þróunarsamvinnustofnuninni á næstu sex árum. Fjármununum verður varið til þess að veita alnæmissjúkum viðeigandi meðferð án endurgjalds, auk þess sem stefnt er að fækka dauðsföllum kvenna í barnsnauð og lækka dánartíðni barna. Einnig er stefnt að því að greiða læknum, hjúkrunarfólki og öðru heilbrigðisstarfsfólki hærri laun og fjárfesta í betri menntun þeim til handa.

Í yfirlýsingu frá United Kingdom’s Department for International Development (DFID) segir að með þessu sé verið að hækka heildarfjárframlög til Malaví um helming og að umsvif í heilbrigðismálum í landinu aukist um 30%.

Heilbrigðisástand í Malaví er með því bágbornasta sem gerist í heiminum og eru lífslíkur landsmanna einungis um 39 ár. Lyf eru af skornum skammti, vannæring er almenn í fátækustu héruðunum og skortur er á hreinu vatni. Víða vantar einnig viðunandi heilsugæslu og þjálfað starfsfólk. Tiltölulega meinlausir sjúkdómar leggja af þessum sökum þúsundir Malava að velli á ári hverju, en tugþúsundir dauðsfalla má einnig rekja til alvarlegra smitsjúkdóma s.s. alnæmi, malaríu, berkla og kóleru. Þróunarstofnun Sameinuðu þjóðanna (UNDP) áætlar að um 60% íbúa í Malaví nái ekki fertugsaldri við núverandi aðstæður og er varnarleysi barna mest, en allt að 114 börn á hverja 100 þúsund íbúa láta lífið fyrir 5 ára aldur.


Talsmaður DFID segir að með auknum framlögum sé verið að bregðast við því neyðarástandi sem ríkir í heilbrigðismálum í Malaví. Stórfelld uppbygging heilbrigðisþjónustunnar í landinu er reyndar samvinnuverkefni þriggja aðila, DFID, Norðmanna og Alþjóðabankans. Fjöldi annarra leggur einnig til mikilsverða aðstoð á þessu sviði en veitir fjármunum sínum í verkefni með tvíhliða aðstoð og er Þróunarsamvinnustofnun Íslands (ÞSSÍ) þar á meðal. Stærsta verkefni stofnunarinnar í Malaví er annars vegar uppbygging heilsugæslu í Monkey Bay héraði og hins vegar stuðningur við uppbyggingu sjúkrahúss í höfuðborginni Lilongwe. Meginmarkmiðið er að styðja malavísk stjórnvöld í því að framfylgja stefnu um að draga úr fátækt með bættri heilbrigðisþjónustu í landinu (Malawi Essential Health Package).

 

Heimild: www.allAfrica.com

 

 




Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica