Síðasta áfanga vatnsverkefnis lokið í Namibíu

29.10.2010

Himbabörn njóta góðs af vatninu
Himbabörn njóta góðs af vatninu
Hreina vatnið kemur ekki síst börnunum til góða bæði hvað varðar heilbrigði og menntun. Ljósmynd: gunnisal

Síðasta áfanga vatnsverkefnisins í þágu Ovahimba þjóðflokksins í norður Kunene sýslu í Namibíu er lokið. Verkefnið miðaði að því að veita hirðingjunum aðgang að hreinu vatni og þjálfa samfélög til að stjórna og viðhalda litlum vatnsveitum. Í þessum síðasta áfanga var lokið við sjö nýjar vatnsveitur, sem samtals geta gefið af sér um 75.000 lítra af vatni á dag. Alls eru fjórar þessara nýju vatnsveitna í nágrenni við skóla, og ætla má að um 350 skólabörn og um 2000 manns  hafi nú fengið aðgang að hreinu vatni í nágrenninu.

Mikil ánægja er hjá heimamönnum og yfirvöldum í Namibíu með samstarfið við ÞSSÍ að sögn Davíðs Bjarnasonar verkefnisstjóra ÞSSÍ í Namibíu. „Verkefnið hefur fært vatn á einhver þurrustu og afskekktustu svæði landsins og þróað ýmsar nýjar nálganir og útfærslur í búnaði og þjálfun heimamanna sem ráðuneyti vatnsmála nýtur góðs af í framtíðarverkefnum sínum,” segir Davíð.

Hann nefnir að mikil vatnsvandræði hafi verið á þessum svæðum áður, og t.d. hafi skólum í nokkrum tilfellum verið lokað vegna kólerufaraldurs. „Hreint vatn á svæðunum tengist þannig heilbrigðis- og menntamálum með beinum hætti,” segir Davíð.

-Hversu umfangsmikið hefur verkefnið verið?

„Alls voru 33 nýjar vatnsveitur settar upp í verkefninu, sem ætla má að gefi af sér um 320.000 lítra af vatni á degi hverjum. Frá upphafi hefur verkefnið eingöngu notast við vatnspumpur sem knúnar eru með sólarorku. Sú tækni lágmarkar umhverfissáhrif og tryggir það að utanaðkomandi orku er ekki þörf. Verkefnið hefur einnig staðið fyrir þjálfun starfsfólks í samstarfsráðuneytinu í sólartækni og viðhaldi slíkra vatnsveitna. Fyrir utan umhverfisþætti er beinn fjárhagslegur ávinningur af því að nýta sólina sem orkugjafa. Alls má áætla að samfélög við hvert vatnsból spari u.þ.b. 200.000 íslenskar krónur á ári í kostnað sem annars hefði farið í kaup á dísel eldsneyti. Sólartækni í vatnsbólum hefur virkilega sannað gildi sitt í þessu verkefni og telja má víst að notkun hennar muni fari vaxandi í Namibíu á næstu árum,” segir Davíð.

Formlegri þróunarsamvinnu milli Íslendinga og Namibíumanna lýkur um næstu áramót.