Jólatré skreytt í Afríku

Undirbúningur jólahalds sunnan miðbaugs

13.12.2004

Jólin eru mesta hátíð ársins víðast hvar í Afríku jafnvel þótt milljónir manna í álfunni hafi ekki efni á að eyða miklu í mat, drykk eða gjafir. Heitasti tími ársins er farinn í hönd sunnan miðbaugs, í Afríkuríkjum er hitastigið yfir hátíðarnar um og yfir 40° C. Jólahaldið er því að mörgu leyti með öðru sniði en Vesturlandabúar eiga að venjast.

Íslenskir starfsmenn Þróunarsamvinnustofnunar Íslands (ÞSSÍ) í Úganda hafa nú þegar skreytt jólatréð sitt. Ekki er um að ræða Normannsþin eða annað barrheldið grenitré heldur afrískt listaverk sem minnir á gróður landsins.

Jolatre í Uganda

 

Ágústa Gísladóttir umdæmisstjóri ÞSSÍ í Úganda segir að jólin þar í landi læðist að fólki hægt og hljótt. Þó megi heyra jólalög óma í stórmörkuðum í höfuðborginni Kampala og verslunareigendur séu einnig duglegir að skreyta. Að halda jólin í Afríku samkvæmt íslenskum siðvenjum er hins vegar, að hennar sögn, eins og að skjóta upp rakettum á sautjánda júní, bjarminn af jólaljósunum hverfur í birtunni af blindandi sólinni og konfektið bráðnar í sumarhitanum.   

 

Bæði í borg og sveit er haldið upp á fæðingu frelsarans og alls staðar gerir fólk sér dagamun á jóladag. Í Úganda klæðir fólk sig upp, fer snemma til kirkju og heldur svo mikla veislu með mat og drykk. Hins vegar er litlu eytt í gjafir og jólasveinninn í rauðu fötunum er nánast óþekkt fyrirbæri. Í Namibíu skreytir fólk þyrnitré sem vaxa í eyðimörkinni eða ofhlaða lítil gervitré með skrauti. Ljós og músastigar eru hengdir upp og stundum er skrautið geymt í glerskápum vikum eða mánuðum saman, jafnvel allan ársins hring. Jólahald kom með nýlenduherrum eða kristniboðum til Afríku og á sumum stöðum blandast það siðum heimamanna. Þannig halda frumstæðir þjóðflokkar til fjalla til að dýrka stokka og steina um hátíðirnar frekar en að tilbiðja hinn vestræna guð og fagna tilkomu jesú krists.

 

Hitinn í álfunni er á þessum árstíma víða óbærilegur og hinir efnameiri taka sér sumarfrí um jólin. Í Namibíu kemur stórfjölskyldan saman og reisir jafnvel tjaldbúðir eða leigir lítil hús úti við sjávarsíðuna, þar gerir fólk sér glaðan dag og haldnar eru veislur. Minnihluti Afríkubúa býr hins vegar við slík lífsgæði og heldur þorri fólks sig heima við yfir hátíðarnar. Góðgerðarsamtök setja alla sína krafta í desembermánuði í að safna fé til handa fátæku fólki og börnum sem eiga hvergi höfði sínu að halla, en Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna áætlar t.a.m. að fjöldi munaðarlausra á aldrinum 0-17 ára í Afríkuríkjum sunnan Sahara sé um 12-13 milljónir. Allt er gert til að sem flestir geti gert jólin að hátíð ljóss og friðar en viðvarandi fátækt gefur þeim verst settu í álfunni fráleitt von um bjarta framtíð.   

 

 





Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica