Meira fjármagn þarf í baráttuna gegn fátækt
Norrænir ráðherrar þróunarmála hvetja til þess að ríkar þjóðir leggi meira af mörkum
Ríkar þjóðir þurfa að leggja til mun meira fjármagn en nú er gert svo unnt sé að ná markmiðum Sameinuðu þjóðanna um að draga úr fátækt í heiminum. Þetta segir í yfirlýsingu sem ráðherrar þróunarmála á Norðurlöndunum sendu frá sér í gær. Mat verður lagt á það á næsta ári hvort markmið um að fækka fátækum í heiminum um helming fyrir 2015 muni nást miðað við þá vinnu sem þegar hefur verið innt af hendi.
Ráðherrar þróunarmála frá Danmörku, Finnlandi, Noregi og Svíþjóð hittust á fundi í Osló í gær, en þar var farið yfir stöðu mála í þróunarsamvinnu. Segir í yfirlýsingu eftir fundinn að jafnvel þótt áþreifanlegur árangur hafi náðst í baráttunni gegn fátækt þurfi að koma til aukið fjármagn svo unnt verði að ná markmiðum Sameinuðu þjóðanna um þróun fyrir árslok 2015. Urðu ráðherrarnir sammála um að Norðurlandaþjóðirnar væru tilbúnar til að leggja sitt af mörkum en hvöttu til þess að aukið fjármagn kæmi einnig frá stóru iðnríkjunum sjö (G7).
Áætlað er að 50 milljarðar bandaríkjadali þurfi árlega til viðbótar því sem nú er lagt fram til að markmið Sameinuðu þjóðanna um þróun náist.
Lesa yfirlýsingu norrænna ráðherra þróunarmála.



125 Reykjavík Heimilisfang: Þverholt 14 Sími: 545 8980 Bréfasími: 545 8985 Netfang: iceida@iceida.is