Malaví: Fimm ára verkefni í lýðheilsu á teikniborðinu í samvinnu við Rauða krossinn

26.1.2011

Samstarf ÞSSÍ og Rauða krossins
Samstarf ÞSSÍ og Rauða krossins
Stefán Jón Hafstein umdæmisstjóri ÞSSÍ í Malaví og Helen Dzoole frá malavíska Rauða krossinum fyrir framan nýju fæðingardeilina í Chilonga. Ljósmynd: Þórir Guðmundsson.

Á þessu ári ætlar Þróunarsamvinnustofnun Íslands að undirbúa nýtt fimm ára verkefni í lýðheilsu með héraðsstjórn Mangochi. Að sögn Stefáns Jóns Hafstein umdæmisstjóra ÞSSÍ í Malaví er hugmyndin sú að Rauði krossinn geti hugsanlega haft hlutverk í verkefninu. Rauði kross Íslands hefur starfað um nokkurra ára hríð í Malaví og „reynslan af þeim verkefnum þykir góð,” segir Stefán Jón.

Í síðustu viku fóru fram viðræður milli fulltrúa frá íslenska Rauða krossinum og malavíska Rauða krossinum við umdæmisstjóra ÞSSÍ í Malaví um slíkt samstarf í Mangochi héraði. Þórir Guðmundsson frá íslenska Rauða krossinum og Helen Dzoole frá malavíska Rauða krossinum fóru þá í vettvangsferð um Mangochi með Stefáni Jóni, sem sýndi þeim verkefni ÞSSÍ, auk þess sem þau ræddu við félagsmenn í RK í héraðinu.

Að sögn Stefán Jóns var ákveðið að halda áfram viðræðum um samstarf í tengslum við heilsugæsluverkefni ÞSSÍ í Mangochi.  Þau Þórir og Helen skoðuðu sjúkrahúsið í Monkey Bay sem Íslendingar byggðu og styrkja, og einnig heilsugæslustöðvar í sveitum, í Namkumbi og Chilonga.  Á síðari staðnum er nú lögð lokahönd á nýja fæðingardeild sem ÞSSÍ byggir. 



Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica