Misnotkun á fé Evrópusambandsins til þróunarmála
Skipulögð svikastarfsemi alvarlegur vandi
Misnotkun á fé Evrópusambandsins (ESB) sem ætlað er til þróunarmála er víðtækt og viðvarandi vandamál. Á þessu ári komu 52 ný mál til kasta eftirlitsstofnunar framkvæmdastjórnar ESB (Anti-Fraud Office of the European Commission) sem reynir að koma í veg fyrir skipulagða svikastarfsemi. Koos Richelle, framkvæmdastjóri þróunarmála hjá ESB, segir að svikastarfsemin teygi anga sína víða og sé vel skipulögð.
Ekki er farið dult með það í nýútkominni skýrslu eftirlitsstofnunarinnar að svikastarfsemi er stunduð víða í þróunarlöndunum, en þriðjungur tilfella hefur komið upp í Afríkuríkjum. 20% allra svikamála sem upp koma hjá ESB tengjast þróunarmálum, en 13% af heildarfjárframlögum sambandsins renna til málaflokksins.
Í umræddri skýrslu kemur fram að skortur á samhæfingu í þróunaraðstoð ESB auðveldi mönnum að koma upp skipulagðri svikastarfsemi, sem meðal annars felst í fölsun á bókhaldsgögnum, röngum upplýsingum varðandi verklok og peningaþvætti í gegnum upplogin fyrirtæki, svo fátt eitt sé nefnt. Talsmaður eftirlitsstofnunarinnar segir að á næsta ári verði athyglinni beint sérstaklega að svikastarfsemi af því tagi sem hér um ræðir og að aðgerðaráætlun verði sett í gang til að berjast gegn henni.
Heimild: www.development-today



125 Reykjavík Heimilisfang: Þverholt 14 Sími: 545 8980 Bréfasími: 545 8985 Netfang: iceida@iceida.is