Ársskýrsla ÞSSÍ komin út
Ársskýrsla Þróunarsamvinnustofnunar Íslands (ÞSSÍ) fyrir árið 2003 er komin út. Í inngangsorðum segir Davíð Oddsson, utanríkisráðherra, að stefna íslenskra stjórnvalda sé að stuðla að því að unnt verði að ná þúsaldarmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um þróun fyrir árið 2015. Segir Davíð að framlag Íslands til þróunarmála verði hækkað næstu ár, markmiðið sé að hlutfall af VLF verði komið í 0.35% árið 2009.
Ársskýrsla ÞSSÍ fyrir árið 2003 er ítarleg samantekt um starfsemi stofnunarinnar í fjórum samstarfslöndum hennar; Malaví, Mósambík, Namibíu og Úganda. Einnig er að finna í skýrslunni upplýsingar um stjórnmálaþróun í löndunum fjórum, ýmsar hagtölur sem og stefnu og strauma í málefnum þróunarlanda.



125 Reykjavík Heimilisfang: Þverholt 14 Sími: 545 8980 Bréfasími: 545 8985 Netfang: iceida@iceida.is