Mikill árangur í baráttunni gegn ólæsi fullorðinna í fiskimannasamfélögum

14.4.2011

Árangur
Árangur
Verkefnið þykir falla vel að forgangsröðun yfirvalda í héraði svo og á landsvísu enda er markmiðið að styðja eigin þróunaráætlun héraðsyfirvalda. Ljósmynd frá Kalangala: gunnisal

Stuðningur Þróunarsamvinnustofnunar Íslands við baráttuna gegn ólæsi í fiskimannasamfélögum á Viktoríuvatni skilar miklum árangri. Tölur um læsi meðal íbúa á eyjunum frá 2002 sýndu að 54% þeirra voru læsir en í lok ársins 2009 var þessi tala komin upp í 58,4%. Rúmlega tólf hundruð íbúar eyjanna höfðu tekið þátt í fullorðinnafræðslu með áherslu á læsi eða um 17,5% ólæsra í héraðinu. Tölur frá árinu 2010 liggja ekki fyrir en ganga má að því sem gefnu að læsum hafi haldið áfram að fjölga. Stuðningi Íslendinga við verkefnið lauk um síðustu áramót.

Að sögn Geirs Oddssonar verkefnastjóra ÞSSÍ eru konur í miklum meirihluta þeirra sem búa ekki yfir lágmarksþekkingu á læsi. Af 4.9 milljónum Úgandabúa sem eru ólæsir eru konur 3.1 milljón eða 63%.

"Við höfum á síðustu árum verið einn helsti bakhjarl stjórnvalda í Úganda í baráttunni gegn ólæsi fullorðinna," segir Geir. "Við höfum stutt verkefni um hagnýta lestrarkunnáttu, svokallað FAL eða Functional Adult Literacy verkefni með kostun á framkvæmd fullorðinsfræðslu í eyjasamfélögunum. Einnig höfum við stutt stefnumótun stjórnvalda á þessu sviði og gerð aðgerðaáætlunar af hálfu stjórnvalda.  Aðgerðaáætlunin hefur þann megintilgang að samþætta fullorðinsfræðslu hagnýtum og staðbundnum þáttum með því að bjóða upp á sértækt hagnýtt námsefni sem hluta af læsisnámskeiðum. Þar erum við að tala um námsefni sem tengist daglegu lífi og lífsviðurværi fólks, hvernig reka á smáfyrirtæki, taka þátt í stofnun og stjórn frjálsra félagasamtaka, svo dæmi séu nefnd. Þessi aðferðafræði hefur líka verið notuð við fræðslu í fiskisamfélögum með áherslu á betri meðferð og gæði afla og fiskafurða. Þetta hefur gert með góðum árangri," segir Geir.

Beinum stuðningi við námskeiðahald í fullorðinnafræðslu lauk um síðustu áramót en ÞSSÍ styður áfram gerð stefnumótunar á vegum félagsmálaráðuneytis um fullorðinnnafræðslu. Unnið er að tveimur stefnumótandi skjölum á því sviði og Geir segir að lokaútgáfa þeirra sé væntanleg á þessu ári.