Þróunarsamvinnustofnun heldur áfram með eitt verkefni í Namibíu
- Ákveðið að koma til móts við óskir Ovahimba um fleiri vatnsból
Ákveðið hefur verið að halda áfram einu verkefni af hálfu Þróunaramvinnustofnunar Íslands í Namibíu þrátt fyrir að formlegu samstarfi þjóðanna hafi lokið um síðustu áramót. Verkefnið sem um ræðir er vatnsveituverkefni í þágu Ovahimba ættbálksins. Að sögn Vilhjálms Wiium sem var umdæmisstjóri í Namibíu en starfar nú sem sérfræðingur á aðalskrifstofu ÞSSÍ var fyrir skömmu skrifað undir samninga við vatnsmálaráðuneyti Namibíu um framhald verkefnisins.
„Samningurinn felur í sér eins árs framhald vatnsveituverkefnis sem ÞSSÍ studdi meðal hirðingja af Ovahimba-ættbálkinum í norðvesturhluta Namibíu,” segir Vilhjálmur. „Á þessu ári verða settar upp sex vatnsveitur til viðbótar þeim 33 sem þegar hafa verið afhentar. Forsaga málsins er sú að íbúar Ovahimba samfélaga fyrir sunnan athafnasvæði gamla vatnsverkefnisins töldu að þeim væri mismunað. Talsmönnum þessara tilteknu samfélaga fannst óréttlátt að fá engar nýjar vatnsveitur á sitt svæði. Þetta er lýsandi dæmi um eitt af þeim vandamálum sem takast þarf á við í þróunarverkefnum. Í fæstum tilvikum er hægt að aðstoða alla þá sem þörf hafa á aðstoð og því þarf að velja og hafna,” segir Vilhjálmur.
Eftir nokkrar umræður við vatnsmálayfirvöld ákvað Þróunarsamvinnustofnun að standa undir kostnaði við þessar sex vatnsveitur. Framkvæmdin er algjörlega á hendi Namibíumanna að sögn Vilhjálms enda er ÞSSÍ ekki lengur með starfsfólk í landinu.
„Nokkrar ástæður lágu að baki því að ÞSSÍ samþykkti að verða við beiðninni þrátt fyrir að hafa hætt starfsemi í landinu,” segir Vilhjálmur. „Í fyrsta lagi gekk vatnsveituverkefnið vel og auðvelt er að sjá þvílíkar breytingar bættur aðgangur að hreinu vatni hefur á lífsgæði fólks. Því er verkefnið mjög verðugt. Í öðru lagi hefur samstarfið við Namibíumenn reynst farsælt og þeir hafa oft og mörgum sinnum lýst yfir þakklæti fyrir þá aðstoð sem Ísland hefur innt af hendi. Því er gott að geta á þennan hátt haldið sambandi við landið þótt í litlum mæli sé. Í þriðja lagi er ÞSSÍ að draga úr svokallaðri verkefnanálgun, þar sem stofnunin sér meira og minna um alla framkvæmd verkefna í samstarfslöndunum, og auka í staðinn fjárstuðning við áætlanir samstarfslanda. Þess háttar stuðningur felur í sér að samstarfslandið sér um framkvæmd en ÞSSÍ veitir fyrst og fremst fjármagn til framkvæmda. Því opnast sá möguleiki að styðja verkefni í löndum þar sem ÞSSÍ hefur ekki umdæmisskrifstofu. Tilvalið er að láta reyna á hvernig það gengur að styðja við verkefni í Namibíu án viðveru á staðnum þar sem stofnunin þekkir vel til staðhátta . Ef vel gengur þá má skoða fleiri möguleika af svipuðum toga síðar,” segir Vilhjálmur.




125 Reykjavík Heimilisfang: Þverholt 14 Sími: 545 8980 Bréfasími: 545 8985 Netfang: iceida@iceida.is