Björn Ingi Hrafnsson, stjórnarformaður ÞSSÍ, skrifar undir rammasamning við sjávarútvegsráðuneytið í Mósambík

22.10.2003

Í dag undirrituðu Björn Ingi Hrafnsson, stjórnarformaður Þróunarsamvinnustofnunar Íslands og Cadmiel F. Mutemba sjávarútvegsráðherra í Mósambik rammasamning um samstarf í sjávarútvegsmálum í Maputo, höfuðborg Mósambik. Hér er um að ræða fyrsta samning sinnar tegundar sem Þróunarsamvinnustofnun hefur gert og á grundvelli hans verða síðan gerðir samningar um einstök afmörkuð verkefni. Samningurinn sem undirritaður var í dag gildir til ársloka 2006. 
Verkefni ÞSSÍ í sjávarútvegsmálum í Mósambik í dag einskorðast fyrst og fremst við gæðamál fiskafurða.  Auk ÞSSÍ veita Norðmenn, Spánverjar og Evrópi sambandið aðstoð í sjávarútvegsmálum í Mósambik.

Fréttatilkynning frá ÞSSÍ. 





Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica