Almenningur vakinn til vitundar um mikilvægi þróunarsamvinnu
Vikulöngu kynningarátaki um gildi alþjóðlegrar þróunarsamvinnu undir kjörorðinu – Þróunarsamvinna ber ávöxt - lauk síðastliðinn föstudag en að átakinu stóðu átta stærstu frjálsu félagasamtökin á landinu sem sinna alþjóðastarfi ásamt Þróunarsamvinnustofnun Íslands. Þrennt bar hæst í vikunni: greinarflokkur í Fréttablaðinu á hverjum degi, dreifing á ávöxtum til almennings á átta fjölförnum stöðum á landinu síðdegis á miðvikudegi og fjölsótt málþing um þróunarsamvinnu á Háskólatorgi á fimmtudag.
Öllum sem stóðu að átakinu ber saman um að vel hafi tekist til og almenningur hafi verið vakinn til vitundar um baráttuna gegn fátækt undir merkjum alþjóðastarfs og þróunarsamvinnu.
“Já, það var virkilega ánægjulegt að sameinast um þetta kynningarátak með Þróunarsamvinnustofnun, tveimur stofnunum Sameinuðu þjóðanna og frjálsum félagasamtökum,” segir Björg Björnsdóttir verkefnastjóri kynningarmála hjá Barnaheill – Save the Children á Íslandi. “Það er jú okkar allra hagur að auka þekkingu og bæta skilning almennings á mikilvægi þróunarsamvinnu. Starfsfólki okkar á vettvangi var undantekningarlaust vel tekið og oft spannst skemmtileg umræða um eplin og pokana góðu frá Úganda. Barnaheill – Save the Children á Íslandi vona að framhald verði á þessu góða verkefni. Það mun svo sannarlega bera ávöxt.”
Ragnar Schram framkvæmdastjóri SOS barnaþorpa á Íslandi tekur undir þetta:
“Fyrir mitt leyti og sem sjálfboðaliði við dreifingu eplanna í Smáralind get ég sagt að fólk tók þessu framtaki okkar gríðarlega vel. Margir þökkuðu kærlega fyrir og tóku fram að þeir styrktu félagasamtök í þróunarsamvinnu reglulega og gerðu það með gleði. Það er greinilegt að málefnið er landsmönnum kært og þeir kunna að meta það þegar þeir eru upplýstir um árangur erfiðisins.”
Það var ekki síst epladreifingin á miðvikudag og pokarnir frá Úganda sem vöktu athygli enda óvenjulegur atburður og fjölmiðlar spenntir fyrir uppákomunni. Fólk á förnum vegi tók gjöfinni líka fagnandi en að dreifingunni sjálfri stóðu sjálfboðaliðar frjálsu félagasamtakanna ásamt ýmsum þjóðkunnum einstaklingum, fulltrúum utanríkismálanefndar, rithöfundur, prestum og öðru góðu fólki sem vildi með þátttöku sinni leggja málefninu lið. Taupokarnir vöktu sérstaka hrifningu en þeir voru sérsaumaðir vegna átaksins af rúmlega tuttugu konum í fátæku þorpi í Úganda.
Breytum skömminni í þjóðarstolt
“Þróunaraðstoð íslenskra stjórnvalda hefur fram til þessa verið hálfgerð þjóðarskömm – það er nákvæmlega ekkert sem stendur í vegi fyrir því að við breytum skömminni í þjóðarstolt. Nákvæmlega ekkert. Nema kannski vilji okkar. “
Jón Kalman Stefánsson rithöfundur gerði opinber framlög til þróunarsamvinnu að umtalsefni í erindi á málþingi í síðustu viku sem hann kallaði: Þróunaraðstoð – hvað græðum við á henni. Málþingið var hluti af kynningarátakinu og var fjölsótt.. Jón Kalman var fyrsti frummælandi og lagði í erindi sínu að miklu leyti út af grein sem Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra skrifaði í Fréttablaðið í síðustu viku. Greinin bar yfirskriftina “Staðráðin í að gera betur” og hófst á þeirri staðhæfingu að Íslendingar geti verið stoltir af framlagi sínu.
“Hér held ég að amma mín heitin hefði farið að tala um hræsni. Og að kunna ekki að skammast sín. Ég veit það ekki. Hún var orðhvöss, hún amma, jafnvel ónærgætin. En átti það líka til að segja það sem var svo satt en óþægilegt að heyra,” sagði Jón Kalman.
Aðrir frummælendur á málþinginu voru Helga Þórólfsdóttir friðarfræðingur, sem fjallaði um árangur þróunarsamvinnu og langtímaáhrif þeirrar samvinnu í þróunarríkjunum, og Engilbert Guðmundsson framkvæmdastjóri Þróunarsamvinnustofnunar Íslands sem fjallaði um gagnrýni á þróunarsamvinnu og úttektir á notagildi hennar.
Að loknum framsöguerindum sátu frummælendur fyrir svörum og komust færri að vildu með spurningar enda tíminn knappur.




Rauðarárstígur 27, 125 Reykjavík, sími: 545 8980 Bréfasími: 545 8985 Netfang: iceida@iceida.is