Íslendingar taka forystu í samstarfi framlagsríkja í umhverfis- og auðlindamálum í Úganda
„Hlutverkið er stórt og margþætt og ábyrgðin er umtalsverð. Við verðum í forsvari fyrir hópinn gagnvart stjórnvöldum og öðrum stofnunum og skipuleggjum og stýrum öllum fundum hópsins," segir Geir Oddsson verkefnastjóri Þróunarsamvinnustofnunar Íslands í Úganda, en Íslendingar gegna nú formennsku í samstarfshópi framlagsríkja í Úganda í umhverfis- og auðlindamálum.
Í kjölfar Parísaryfirlýsingarinnar, sem undirrituð var árið 2005, hefur aukin áhersla verið lögð á samvinnu þróunarsamvinnustofnana. Hvatann að þessum breytingum má rekja til aukinnar gagnrýni á þróunarsamvinnu þar sem því var haldið fram að henni væri að of miklu leyti stýrt af forgangsröðun veitenda, sem gerði þróunarríkjum erfitt fyrir að mynda sína eigin stefnu og taka forystu í eigin framþróun. Þróunarsamvinna var af mörgum álitin of ósamræmd, óútreiknanleg og langt frá því að vera gagnsæ. Þetta skapaði ógrynni vandamála sem komu í veg fyrir að hún nýttist eins vel og mögulegt er.
Í Úganda, líkt og annars staðar, hafa framlagsríki reynt að bregðast við þessari gagnrýni með því, meðal annars, að mynda svokallaða samstarfshópa veitenda. Þessir hópar eru skipaðir eftir geirum eða áherslusviðum, með hliðsjón af því hvernig sú skipting er í innlendri stjórnsýslu, og í hópunum sitja fulltrúar flestra þeirra framlagsríkja sem vinna í hverjum geira eða eru áhugasamir um hann. Hóparnir hittast svo reglulega til þess að samrýma aðgerðir sínar, fjárframlög og stefnur. Til þess að minnka áreiti og auka á gagnsæi er leitast við að láta samskipti við stjórnvöld fara fram í gegnum hópana.
Á undanförnum árum hafa fulltrúar Þróunarsamvinnustofnunnar Íslands í Úganda setið í ýmsum samstarfshópum og má þar nefna hópa sem sérhæfa sig í landbúnaðarmálum, jafnréttismálum, orkumálum, dreifstýringarmálum, loftslagsbreytingamálum, mannréttindamálum og umhverfis- og auðlindamálum. Íslendingar hafa nú, í fyrsta skipti, tekið að sér að gegna formennsku í einum þessara hópa. Hópurinn sem um ræðir vinnur í umhverfis- og auðlindamálum, þ.m.t. loftslagsbreytingum, í Úganda, og í honum sitja fulltrúar flestra stærri veitenda sem vinna í þessum málaflokki, eins og til að mynda Alþjóðabankans, Þróunarstofnunar Sameinuðu Þjóðanna, Evrópusambandsins, Noregs, Danmerkur og Þýskalands. Kosið er til formennsku árlega og að sögn Geirs Oddssonar er Íslendingum sýnt mikið traust með þessari kosningu.
Vandamálin sem hópurinn tekst á við eru, meðal annarra, ört hverfandi skógar, áhrif loftslagsbreytinga á þá fátækustu og sjálfbær nýting náttúruauðlinda. Að sögn Geirs eru þessi vandamál mun brýnni í Úganda en mörgum öðrum þróunarríkjum. "Hér reiðir stór meirihluti íbúa sig á náttúruauðlindir á borð við fisk, skóga og landbúnað til þess að geta fætt sig og sína. Loftslagsbreytingar og ágangur mannsins hafa nú þegar gert það að verkum að minna af fiski er að finna í vötnum og rigningar og þurrkar hafa orðið óútreiknanlegri og umfangsmeiri."
Þar af leiðandi er ljóst að Íslendingar munu gegna lykilhlutverki í þróunarmálum í Úganda næsta árið. -PK, Kampala.




125 Reykjavík Heimilisfang: Þverholt 14 Sími: 545 8980 Bréfasími: 545 8985 Netfang: iceida@iceida.is