Nýr leiðtogi í Mósambík
Nýkjörinn forseti vill samvinnu við stjórnarandstöðuna í baráttunni gegn fátækt
Armando Guebuza leiðtogi stjórnarflokksins Frelimo fór með sigur af hólmi í nýafstöðnum forsetakosningum í Mósambík. Á þriðju viku tók að telja atkvæðin en endanleg úrslit voru kynnt í gær. Afonso Dhlakama formaður stjórnarandstöðuflokksins Renamo hefur gagnrýnt framkvæmd kosninganna og sakað stjórnvöld um kosningasvindl.
Samkvæmt opinberum tölum hlaut Guebuza tæp 64% atkvæða í forsetakosningunum og Dhlakama tæp 32%. Einnig var kosið til þings og fékk stjórnarflokkurinn Frelimo 160 sæti en Renamo 90 sæti. Kosningaþátttaka var mjög dræm, aðeins 36% kjósenda skiluðu sér á kjörstað. Kosningaeftirlitsmenn Evrópusambandsins hafa greint frá því að kosningareglum hafi ekki verið framfylgt út í ystu æsar en misfellurnar hafi ekki verið það alvarlegar að það hafi haft teljandi áhrif á niðurstöður.
Guebuza sagði eftir að úrslitin lágu fyrir að kosning hans myndi leiða til nýrra tækifæra og breytinga í Mósambík. Hann sagðist jafnframt vona að unnt væri að vinna með stjórnarandstöðunni að því að útrýma fátækt í landinu og bæta heilbrigðisþjónustuna.
Mósambík er meðal verst settu ríkja heims. Lífslíkur þarlendra eru aðeins tæp 40 ár, ólæsi er útbreitt, barnadauði með því hæsta sem um getur og örbirgð ógnvekjandi. Mósambík hlaut sjálfstæði 1975 en sogaðist fljótt inn í átök nágrannaríkja og innbyrðis deilur andstæðra afla heimafyrir. Um ein milljón manna lét lífið í borgarastríðinu sem stóð yfir frá 1977 til 1992 en þá var undirritaður friðarsamningur á milli frelsishreyfingarinnar Frelimo sem hélt um stjórnartaumana og andspyrnuflokksins Renamo. Frelimo hefur farið með völdin í landinu alla tíð síðan.
Þróunarsamvinnustofnun Íslands (ÞSSÍ) hefur starfað í Mósambík frá árinu 1996.
Heimild: www.bbc.co.uk



125 Reykjavík Heimilisfang: Þverholt 14 Sími: 545 8980 Bréfasími: 545 8985 Netfang: iceida@iceida.is