Héraðsþróunarverkefni í Mangochi hefst á næsta ári

Verkefnið kynnt á sjötta fundi samráðshóps um þróunarsamvinnu

16.11.2011

Samstarfsráð um þróunarsamvinnu
Samstarfsráð um þróunarsamvinnu
Frá fundi samstarfsráðsins í vikunni. Ljópsmynd: Jón Einar Sverrisson.

Stefnt er að því að í árslok verði tilbúin samstarfsáætlun fyrir Malaví en kveðið er á um gerð slíkra áætlana fyrir samstarfsríki í tvíhliða þróunarsamvinnu í þróunarsamvinnuáætlun 2011 til 2014 sem samþykkt var á þingi síðastliðið vor. Drög af samstarfsáætlun fyrir Malaví, sem jafnframt er fyrsta slíka stefnuskjalið sem gert er að Íslands hálfu, var á mánudaginn kynnt fyrir samstarfsráði um þróunarsamvinnu. Samstarfsráðið ber ábyrgð á faglegri umfjöllun um þróunarsamvinnu Íslands samkvæmt lögum og í ráðinu sitja sautján fulltrúar, fimm frá íslenskum hjálparsamtökum, tveir frá háskólasamfélaginu og tveir frá vinnumarkaðinum. Hin sjö sætin skipa fulltrúar Alþingis.

Samkvæmt drögum að samstarfsáætlun fyrir Malaví munu einstök verkefni undir stjórn Þróunarsamvinnustofnunar Íslands heyra sögunni til en svonefnd verkefnastoðanálgun (Programme Based Approach) taka við. Fram kom í máli Engilberts Guðmundssonar framkvæmdastjóra ÞSSÍ á fundinum að breytingarnar séu miklar og verið sé að vinna að héraðsþróunarverkefni í Mangochi héraði sem hefjist formlega á árinu 2012. Málaflokkar verða þrír – vatn og hreinlæti, menntun og lýðheilsa.

Engilbert sagði ÞSSÍ hafa mikla reynslu af starfi í héraðinu sem telur 900 þúsund íbúa og ÞSSÍ muni veita fé og tæknilega aðstoð við að á fram skilgreindum markmiðum í þróunaráætlun Mangochi. Unnið er að gerð sérstakra verkefnaskjala fyrir málaflokkana þrjá í samráði við heimamenn og einnig verði héraðsskrifstofan efld til að ráða betur við framkvæmd verkefna á eigin vegum. Breytingarnar fela í sér að ÞSSÍ verði ekki lengur í beinum framkvæmdum með eigið starfslið heldur taki héraðsstjórn að sér umsjón verkefna.

Á dagskrá fundar samstarfsráðsins var meðal annars rætt um gagnsæi í störfum ráðsins, rædd var framkvæmd þróunarsamvinnuáætlunar, frumvarp til fjárlaga 2012 og kynnt fagteymi ráðuneytis og ÞSSÍ en þau taka til  jafnréttismála, orku- og fiskimála og verklags- og eftirlits. Aukin heldur var kynning á samstarfsáætluninni fyrir Malaví og aðgerðaráætlun fyrir Palestínu.

Samstarfsráðið heldur að jafnaði fundi tvisvar á ári. Formaður þess er Valgerður Sverrisdóttir fyrrverandi utanríkisráðherra.