Nýtt verkefni í Úganda: Kynbundin áhrif lofslagsbreytinga
„Loftslagsbreytingar hafa mest áhrif á þá sem fátækastir eru. Vegna þess að stór meirihluti þeirra sem eru fátækir eru konur þarf að taka sérstakt tillit til þarfa þeirra þegar kemur að aðlögun að breyttum aðstæðum sem tilkomnar eru vegna loftslagsbreytinga," segir María Nandago, yfirverkefnisfulltrúi hjá Þróunarsamvinnustofnun í Úganda. Þar hefur verið komið á fót nýju samstarfsverkefni við innlend stjórnvöld í samvinnu við Noreg og Danmörku, sem ætlað er að auka þekkingu á kynbundnum áhrifum loftslagsbreytinga í Úganda og getu til stefnumótunar sem tekur tillit til þessa.
Fyrstu tveimur stigum verkefnisins er þegar lokið. Það fyrra fól í sér rannsókn á kynbundnum áhrifum loftslagsbreytinga í Úganda, sem framkvæmd var af Jafnréttis- og kynjafræðiskóla Makarere Háskóla í Úganda í samvinnu við innlend stjórnvöld. Í því seinna var sendinefnd Úganda til 17. Lofslagsráðstefnu Sameinuðu Þjóðanna (COP-17), ásamt ýmsum ráðamönnum, boðið á fund þar niðurstöður rannsóknarinnar voru kynntar.
Fundurinn var gífurlega vel sóttur, en þar var meðal frummælenda Rajendra Pachauri sem tók við Friðarverðlaunum Nóbels fyrir hönd milliríkjanefndar Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar árið 2007 og María Mutagamba vatns- og umhverfismálaráðherra Úganda. Einnig voru á fundinum fjöldi þingmanna, ásamt fulltrúum ráðuneyta og opinberra stofnana, frjálsra félagasamtaka, háskólasamfélagsins og einkageirans.
Niðurstöðurnar rannsóknarinnar, sem kynntar voru á fundinum, eru margþættar. Að sögn Maríu var rannsókninni ætlað að gera úgandísku sendinefndinni kleift og hvetja hana til að móta sér skýra afstöðu til kynbundinna áhrifa loftslagsbreytinga fyrir COP-17 fundinn. Lögð áhersla á að kynna skýrar ráðleggingar sem rannsóknin hafði sýnt fram á að gætu haft mikil og jákvæð áhrif á stöðu og velferð fátækra kvenna. „Aðgangur að vatni og eldivið er sérstaklega mikilvægur vegna þess að loftslagsbreytingar hafa orðið til þess að konur þurfa nú að ganga mun lengri vegalengdir til þess að sækja vatn og eldivið fyrir fjölskylduna. Þessi áhrif eru sérstaklega alvarleg þegar konur eru vannærðar." Aðgangur að landi og auðlindum og stuðningur við sameiginlega ákvarðanatöku á heimilum voru aðrir mikilvægir þættir. Að auki kom skýrt fram að mikil þörf er á að mennta stefnumótendur, sveitastjórnir og aðra um nauðsyn þess að tekið sé tillit til kynbundinna áhrifa loftslagsbreytinga við stefnumótun og gerð aðgerðaáætlana vegna loftslagsbreytinga.
Næstu skref verkefnisins snúa annars vegar að því að halda ráðstefnu þar sem niðurstöðum COP-17 fundarins sem snúa að jafnrétti verður komið á framfæri og hins vegar að því að auka getu lykilaðila. Undirbúningur hefur þegar hafist fyrir mótun námsefnis fyrir námskeið sem haldið verður á fyrri hluta næsta árs. Sérstakur undirbúningshópur hefur verið skipaður, en í honum sitja fulltrúar frá Vatns- og umhverfismálaráðuneytinu, Kynja-, vinnu- og félagsmálaráðuneytinu, samvinnuhópi Noregs, Danmerkur og Íslands, og sérfræðingar frá alþjóðlegum jafnréttisskóla Háskóla Íslands. Þegar íslensku sérfræðingarnir koma til Úganda fá þá tækifæri til þess að kynna sér aðstæður og safna gögnum, jafnframt því að byrja að þróa námsefni fyrir námskeiðið. -PK, Kampala




125 Reykjavík Heimilisfang: Þverholt 14 Sími: 545 8980 Bréfasími: 545 8985 Netfang: iceida@iceida.is