Samora Machel fræðslusetrið tekið í notkun í Jangamó héraði

25.4.2012

Fræðslusetur í Jangamó
Fræðslusetur í Jangamó
Laurina Titoce héraðsstjóri, Ágústa Gísladóttir umdæmisstjóri ÞSSÍ, Beatrice Jacob menntamálastjóri og Maria de Fatima Zacharias ráðuneytisstjóri.
Það var mikið um dýrðir í Cumbane þorpi  í Jangamó héraði í Mósambík  á dögunum þegar yfirvöld menntamála vígðu fyrsta fullorðinsfræðslusetur sem reist hefur verið á þeim slóðum.  Bygging setursins var hluti af stuðningi Þróunarsamvinnustofnunar við menntamálayfirvöld í héraðinu og kostaði alls 20 milljónir íslenskra króna. Í því er m.a. kennslustofa, aðstaða til tölvunáms og lítið bókasafn.

 

Setrið er ætlað fyrir fullorðinsfræðslunemendur, jafnt núverandi sem fyrrverandi, kennara þeirra og almenning í þorpinu þar sem það er staðsett. Fyrirhugað er að nota húsið fyrir ýmiss námskeið s.s. fyrir stuðningskennara í fullorðinsfræðslukjörnum, fullorðinsfræðslukennarana og nemendahópa með lífsleikniverkefni.  Sérstaklega verður lögð áhersla á að kynna möguleika setursins til að hýsa námskeið í ýmsum hagnýtum greinum svo sem viðskiptafærni, tölvunotkun, framleiðslu og markaðsetningu matvæla, tré- og blikksmíðar, sem haldin eru á vegum opinberra aðila.

Við hátíðarhöldin hlaut setrið nafn fyrsta forseta Mósambík, Samora Machel, og verður rekstur þess í umsjón menntamáladeildar héraðsins.  Ráðuneytisstjóri menntamálaráðuneytisins, klippti síðan á borðann og foringi forystusveitar flokksins helgaði húsið og friðþægði hina framliðnu með kampavínssvettu á tröppurnar.  Að því loknu voru gróðursett nokkur tré og forystukvinnur verkefnisins þe. ráðuneytissjórinn, menntamálastjóri Inhambane fylkis,  héraðsstjórinn í Jangamó, og umdæmisstjóri ÞSSÍ skáru kökuna og deildu einni sneið í tilefni dagsins. Íbúar þorpsins skemmtu svo viðstöddum með söng og dansi.