Skrifað undir rammasamning til fjögurra ára við stjórnvöld í Malaví
- þróunarsamvinna á hérðasvísu í Mangochi
Frú Maseko sagði sérlega áhugavert að sjá þær áherslur sem lagðar væru á mæðra- og barnavernd í heilbrigðisverkefninu, þau mál væru nýjum forseta Joyce Banda ákaflega hugfólgin og þær stöllur myndu heimsækja vettvang ÞSSÍ til að skoða framvindu.
Meginþættir samningsins kveða á um stuðning við vatn og hreinlæti, menntamál og lýðheilsu, auk þess að byggja upp getu heimamanna til að annast svona verkefni sjálfir. Heildarframlög eru árangurstengd, ætlað er að þau verði að lágmarki 8 milljónir dollara á þessu tímabili, en geti farið upp í allt að 13 milljónir dollara ef framlög til ÞSSÍ eru næg og framvinda verkefna réttlætir.
Í ávarpi til ráðuneytismanna og fjölmiðla sagði Stefán Jón Hafstein að þetta væri söguleg stund fyrir ÞSSÍ í Malaví. Nú væri tekið skref sem færði eignarhald og sjálfbærni í auknum mæli til heimamanna. ÞSSÍ hefði aflað mikillar reynslu í verkefnum í rúma tvo áratugi, og sú reynsla hefði nýst vel við að leggja upp þessa nýju nálgun. Hann beindi máli sínu til héraðsstjóra Malaví sem var viðstaddur: "Manstu þegar við hittumst fyrst með fólkinu okkar á stórum fundi í desember 2009? Þá hófst þessi undirbúningur sem nú hefur borið ávöxt."
Síðan þá hafa fjölmargir starfsmenn og ráðgjafar ÞSSÍ komið að undirbúningi þessa verkefnis í náinni samvinnu við stjórnendur á héraðsskrifstofunni.
Ralph Jooma nýr aðstoðar fjármálaráðherra Malaví, Ralph Jooma, var einnig viðstaddur undirritun samningsins en hann er þingmaður frá Mangochi. Hann lauk miklu lofsorði á verkefni ÞSSÍ í héraðinu á liðnum árum.




Rauðarárstígur 27, 125 Reykjavík, sími: 545 8980 Bréfasími: 545 8985 Netfang: iceida@iceida.is