Gætu aukið tekjur gríðarlega - Viðtal við Árna Helgason í jólablaði Fiskifrétta 2004

ÞSSÍ aðstoðar við að koma upp gæða- og vottunarkerfum í samstarfslöndunum

29.12.2004

Í mörgum þróunarlöndum eru stundaðar fiskveiðar, en jafnan er veiðimennina að finna í fátækustu þjóðfélagshópunum. ÞSSÍ hefur lagt áherslu á aðstoð við uppbyggingu í fiskimálum í 4 samstarfslöndum í Afríku. Víðast hvar er meðferð á fiskinum mjög ábótavant enda er kælingin engin í þeim mikla hita sem orðið getur í álfunni. Árni Helgason aðstoðarframkvæmdastjóri ÞSSÍ segir í viðtali við Fiskifréttir að talið sé að um 30-40% af fiski sem kemur af löndunarstöðunum í Úganda séu óhæf til vinnslu til útflutnings.

,,Áður en fiskurinn kemur á lokaáfangastað er hann búinn að veltast á milli báta og hefur gengið kaupum og sölum á ströndinni og legið í sandinum. Þessi fiskur er einfaldlega skemmdur, en hann fer eigi að síður á innanlandsmarkað og er allur borðaður. Úgandamenn gætu aukið tekjur af fiski og fiskvinnslu gríðarlega mikið án þess að veiða meiri fisk, einfaldlega með því að bæta meðferðina á aflanum. Við hugsum okkur að leggja þar hönd á plóg, bæði í gegnum fullorðinsfræðsluna og í tengslum við fiskgæðaverkefnið sem er hitt aðalverkefni okkar í Úganda,” segir Árni m.a. í viðtalinu.

Fiskgæðaverkefni ÞSSÍ í Úganda er í því fólgið að aðstoða stjórnvöld við að koma á fót rannsóknastofu sem hafa mun það hlutverk að löggilda aðrar vottunarstöðvar í landinu sem gefa út vottorð vegna útflutnings á fiski. Þjóðir í Austur-Afríku hafa ítrekað lent í því að Evrópusambandið hefur stöðvað innflutning á fiski frá þeim á þeirri forsendu að varan væri óheilsusamleg. Í eitt skiptið var tilefnið frétt um að einhverjir fiskimenn við Viktoríuvatn hefðu notað skordýraeitur til að veiða fisk. Í annað sinn var borið við kóleru en um það leyti stóð borgarastyrjöldin í Ruanda sem hæst og lík flutu um ár og vötn.

,,Í rauninni snerust lokanir ESB ekki um það að fiskurinn frá viðkomandi löndum, Úganda, Keníu og Tansaníu, væri sýktur, --hann var í góðu lagi enda ekki kominn úr þessu umhverfi -- heldur var málið það að þessar þjóðir gátu ekki lagt fram viðurkennd vottorð um að fiskurinn væri ósýktur. Markmið okkar er að aðstoða Úgandamenn við að uppfylla skilyrði ESB þannig að hægt sé að stunda þessi viðskipti hindrunarlaust. Núna eru þessar þjóðir á undanþágum og þegar svo er háttað er auðvelt að beita viðskiptahindrunum ef einhverjum fiskimönnum innan ESB finnst hag sínum ógnað vegna innflutnings frá Afríku,” segir Árni meðal annars.

Lesa allt viðtalið við Árna Helgason

Birtist í: Fiskifréttir, Jólablað í desember 2004, "Fiskimálaráðgjöf í fátæku Afríku, rætt við Árna Helgason aðstoðarframkvæmdastjóra Þróunarsamvinnustofnunar Íslands, sem unnið hefur við þróunarstörf í sunnanverðri Afríku síðustu tíu ár"