Áherslubreytingar fyrirséðar á Sri Lanka

25 milljónum króna varið til þróunarsamvinnu á Sri Lanka á þessu ári

5.1.2005


Náttúruhamfarirnar í Suður-Asíu munu að líkindum hafa áhrif á fyrirætlaða samvinnu Þróunarsamvinnustofnunar Íslands (ÞSSÍ) og stjórnvalda á Sri Lanka sem á að hefjast á þessu ári. Vænta má áherslubreytinga, en öll verkefni sem ÞSSÍ tekur að sér eru unnin á forsendum samstarfslandanna, í anda stefnu stjórnvalda þar og með hliðsjón að starfi annarra þróunarsamvinnustofnanna í landinu. Sri Lanka varð mjög illa úti þegar flóðbylgja skall á landinu í kjölfar jarðskjálftans undan strönd Indónesíu á annan dag jóla og var skaðinn mestur í fiskimannasamfélögunum. Fyrirhugað er að þróunarstarf ÞSSÍ verði að mestu á sviði fiskimála, en samkvæmt samþykktum áætlunum verður 25 milljónum króna varið til þróunarsamvinnu á Sri Lanka á þessu ári.

Neyðin er mikil í á Sri Lanka eftir náttúrhamfarirnar í lok síðasta mánaðar, einkum við sjávarsíðuna. Samkvæmt upplýsingum á fréttavef BBC varð landið næstverst úti á eftir Indónesíu. Heilu þorpunum skolaði bókstaflega á haf út, tala látinna er komin yfir 30 þúsund, um 3 þúsund manns er enn saknað, 100 þúsund hús eru ýmist skemmd eða ónýt og hátt í 1 milljón manna er heimilislaus og hefst við í neyðarskýlum. Vatnsból eru víða menguð og matur er af skornum skammti. Mikið úrhelli hefur síðan enn bætt á neyð fólksins, en nú stendur yfir regntímabilið sunnan miðbaugs.

Mikið kapp er lagt á að koma hjálpargögnum, lyfjum og mat til landsins og munu næstu mánuðir reyna mikið á getu stjórnvalda til að koma hjólum efnahagslífsins í gang að nýju. Eitt af meginverkefnum hins opinbera snýr að því að koma fótunum undir fiskveiðimennina úti við sjávarsíðuna. Fyrir náttúruhamfarirnar voru um 27 þúsund bátar til í landinu sem notaðir voru til fiskveiða, þar af var um helmingur vélbátar, en talið er að allt að 80% þeirra hafi eyðilagst eða laskast í flóðbylgjunni á þeim svæðum sem verst urðu úti. Um 250 þúsund manns komu beint eða óbeint að greininni og um 1 milljón manna hafði lifibrauð af fiskveiðum. Sjávarútvegur var um 2,7% af VLF árið 2000. Þá er lítið sem ekkert er eftir af 10 af 15 fiskihöfnum og gera má ráð fyrir að bátasmiðjur og fiskvinnslustöðvar sem flestar eru við ströndina hafi orðið fyrir skemmdum.

Ljóst er að mikið uppbyggingarstarf er framundan á Sri Lanka. Að því er fram kemur í fréttum erlendra fjölmiðla ríkir víða algert neyðarástand og eru fiskveiðimenn hræddir við að fara aftur á sjóinn, þeir sem á annað borð eiga ennþá bát. Ástæðan er annars vegar fólgin í því að þeir treysta ekki því að bátarnir séu óskemmdir og hins vegar óttast þeir að önnur flóðbylgja kunni að ríða yfir. Þeir sem hafa misst allt sitt vita ekki hvernig þeir eiga að draga björg í bú þegar frá líður, tugþúsundir hafa litla ástæðu til að líta björtum augum fram á veginn. Fólkið sem hefst við í neyðarskýlum segist þakklátt fyrir að því sé séð fyrir fæðu og skjóli sem stendur, en það eru uggandi um framtíð sína og spyr hvað um það verður þegar aðstoð erlendra hjálparsamtaka þrýtur.

Fjoldi latinna a Sri Lanka

Kort sem birt er á heimasíðu stjórnvalda á Sri Lanka. Kortið sýnir tölu látinna og hvaða
héruð urðu verst úti.

Stjórn ÞSSÍ ákvað að efna til þróunarsamstarfs við tvö ný lönd á fundi sínum 2. desember 2004, Sri Lanka og Nikaragúa. Talið er að sérþekking Íslendinga nýtist í báðum löndum, annars vegar á sviði sjávarútvegs og hins vegar á sviði jarðhita- og orkumála. Utanríkisráðuneytið fyrir hönd ÞSSÍ hefur þegar hafið undirbúning að gerð samstarfssamnings um þróunarstarf við ríkisstjórnir beggja landa. Eins og fyrr segir verður þó væntanlega áherslubreyting í tengslum við það starf sem fyrirhugað var á Sri Lanka og verður það unnið á forsendum þarlendra stjórnvalda.





Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica