Formleg opnun fiskgæðarannsóknastofu í borginni Entebbe í Úganda

27.11.2003

Síðan í júní 2002 hefur ICEIDA unnið í samstarfi við fiskimálayfirvöld í Uganda að uppbyggingu fiskgæðarannsóknastofu. Verkefnið er skipulagt til þriggja ára. Á því tímabili er áætlað að byggja og eða breyta húsnæði í rannsóknastofu, tækjavæða, byggja gæðakerfi (ISO 17025) og þjálfa starfsfólk til þeirra starfa sem í boði eru.
Eitt af markmiðum rannsóknastofunnar er að veita þjálfun og þróa kunnáttu hjá yfirvöldum í Uganda til að staðfesta gæði fisks sem ætlaður er til manneldis, bæði á innanlands markað og til útflutnings. Megin áhersla rannsóknastofunnar verður á örverumælingar og ferskleikamælingar, áætlað er að bjóða 10 mismunandi örverumælingar auk TVBN mælinga og skynmats. Þann 4. júlí s.l. var fiskgæðarannsóknastofan opnuð formlega við hátíðlega athöfn í Entebbe (en Entebbe er næst stærsta borg Uganda 40 km SV af höfuðborginni Kampala). 
Það var ráðherra fiskimála Dr. Fabius Byaruhanga sem opnaði rannsóknastofuna formlega að viðstöddu margmenni.  Boðsgestum var síðan gefin kostur á að skoða rannsóknastofuna undir leiðsögn og þiggja veitingar að því loknu.
Auk sérfræðings sem ICEIDA leggur til eru sex Ugandískir starfsmenn við rannsóknarstofuna, tveir háskólamenntaðir, tveir rannsóknamenn og tveir aðstoðarmenn. 



Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica