Sameinuðu þjóðirnar horfi til endurreisnar á flóðasvæðunum

Kofi Annan framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna leggur áherslu á langtímamarkmið

10.1.2005

Kofi Annan framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna (Sþ) sagði eftir heimsókn sína til Sri Lanka um helgina að mikilvægt væri að uppbygging hæfist á flóðasvæðunum við Indlandshaf. Lagði hann áherslu á að þeir fjármunir sem rynnu til neyðarhjálpar á hamfarasvæðunum bættust ofan á þau framlög sem þegar hefðu verið eyrnarmerkt þróunarmálum og baráttunni gegn fátækt í þróunarríkjunum. Ríkisstjórn Íslands samþykkti í síðustu viku að þrefalda framlög til þróunarsamvinnu við stjórnvöld á Sri Lanka og verður alls 75 milljónum króna varið til uppbyggingarstarfs þar í landi á þessu ári á vegum Þróunarsamvinnstofnunar Íslands (ÞSSÍ).

Þúsaldarmarkmið um þróun voru sett á allsherjarþingi Sþ í september árið 2000.  Aðilar að samkomulaginu hétu því að vinna í sameiningu og með markvissum hætti að þróunarverkefnum til að auka lífsgæði íbúa í verst settu ríkjum heims. Eitt helsta markmiðið er að berjast gegn fátækt í heiminum og fækka um helming, fyrir árið 2015, þann fjölda fólks sem býr við lökustu kjörin.

 

Annan sagðist á blaðamannafundi á Sri Lanka í gær óttast að alþjóðasamfélagið kynni að gleyma baráttunni gegn fátækt í ljósi náttúruhamfaranna í Suður-Asíu. Hvatti hann ríkar þjóðir til að hvika ekki frá fyrri áformum og leggja fé til neyðaraðstoðar í Suður-Asíu ofan á þau framlög sem eyrnamerkt hefðu verið uppbyggingarstarfi í þróunarlöndunum. Sagði Annan það skyldu sína að minna alla á að málefni þróunarríkja væru jafn knýjandi eftir sem áður.

 

Haldinn verður ráðstefna í Genf á morgun þar sem farið verður fram á fjárframlög til endurreisnar á hamfarasvæðunum. Vonast er til að aðildarríki Sþ lofi að leggja fram allt að 1 milljarði bandaríkjadala til uppbyggingarstarfsins.

 

Heimild: Sri Lanka - Government Information Department