Ástand mála alvarlegra en talið var

FAO segir framboð fisks hafa dregist saman um 90%

14.1.2005

Talsmaður Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (FAO) segir að framboð fisks hafi dregist saman um allt að 90% á þeim svæðum sem verst urðu úti í hamfaraflóðinu í Suður-Asíu og hafi efnahagsgrundvöllur sjómanna hrunið. Sri Lanka er þar á meðal og eru fulltrúar FAO þegar farnir til lansins til að meta ástandið og veita stjórnvöldum ráðgjöf um hvernig unnt er að byggja upp fiskimannasamfélögin. Sögusagnir um að aflinn sem nú komi á land sé hættulegur til neyslu eykur enn á vandann.

Á heimasíðu FAO er haft eftir Jeremy Turner yfirmann hjá stofnuninni að ástand mála í fiskimannasamfélögunum í löndunum við Indlandshaf sé mun alvarlegra en í fyrstu var talið. Segir hann að á Sri Lanka hafi meira en 7.500 sjómenn farist í hamfaraflóðinu og um 5.600 sjómanna sé enn saknað. Þá hafist um 5.000 fjölskyldur við í neyðarskýlum eftir að hafa misst heimili sín. Um 80% af fiskveiðiflotanum eru sögð ónýt eða löskuð á Sri Lanka og telur Turner mikilvægt að uppbyggingarstarf hefjist í landinu hið fyrsta.

Hann leggur áherslu að að horft verði til framtíðar í þeim efnum og að stjórnvöld eigi að setja sér langtímamarkmið. Fyrir hamfarirnar segir Turner að floti strandveiðibáta hafi verið of stór sem hafi leitt til ofveiði á ákveðnum tegundum. Ráðleggur hann að flotinn nái ekki sömu stærð eða verði stærri þegar til lengri tíma er litið. Fulltrúar FAO eru staddir á Sri Lanka stjórnvöldum til ráðgjafar um það hvernig byggja eigi upp fiskimannasamfélögin að nýju.

 

Sögusagnir um að sá fiskur sem komi upp úr sjónum eftir flóðin sé óhæfur til neyslu eru úr lausu lofti gripnar segir FAO. Heimamenn á hamfarasvæðunum standa í þeirri trú að fiskurinn nærist á rotnandi líkum og óttast þeir að leggja hann sér til munns. Þetta hefur aukið enn á vandann, annars vegar vegna þess að ekki er unnt að selja þann litla afla sem kemur á land og hins vegar vegna þess að fiskur hefur jafnan verið uppistaðan í fæðu íbúanna í löndunum sem um ræðir.


Eins og greint hefur verið frá samþykkti ríkisstjórn Íslands í síðustu viku að þrefalda framlög til þróunarsamvinnu við stjórnvöld á Sri Lanka og verður alls 75 milljónum króna varið til uppbyggingarstarfs þar í landi á þessu ári á vegum ÞSSÍ. Stofnunin mun starfa með stjórnvöldum á Sri Lanka að þeim verkefnum sem þau telja brýnust. Aukin framlög Íslands til þróunarsamstarfs við stjórnvöld á Sri Lanka gera ÞSSÍ kleift að hefjast handa fyrr en áætlað var auk þess sem unnt er að ráðast í stærri verkefni. Mun fulltrúi ÞSSÍ fara út til viðræðna við yfirvöld fljótlega.

Heimild: www.fao.org

 





Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica