Afhending trúnaðarbréfs í Malaví
Benedikt Ásgeirsson, sendiherra, afhenti 16. þ.m. dr. Bakili Muluzi, forseta Lýðveldisins Malaví, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands gagnvart Malaví med aðsetur í Mósambík.
Þróunarsamstarf Íslands og Malaví hófst árið 1989 og var í upphafi einkum á sviði fiskirannsókna, en í Malavívatni eru auðug fiskimið. Í millitíðinni hefur samstarfið aukist og nær nú einnig til heilsugæslu, sjókortagerðar og margvíslegra menntunarverkefna. Unnið er við uppbyggingu grunnskóla og stuðningur veittur til fullordinsfræðslu, sjómannanáms og fiskeldismenntunar. Auk þess er í undirbúningi nýtt fiskimálaverkefni sem hefjast mun síðar á þessu ári. Malaví er eitt af fjórum samstarfslöndum Íslands á sviði þróunarsamvinnu en þau eru öll í sunnan- og austanverðri Afríku. Í Malaví er umfangsmesta þróunarsamstarf Íslands.



Rauðarárstígur 27, 125 Reykjavík, sími: 545 8980 Bréfasími: 545 8985 Netfang: iceida@iceida.is