Þróunaraðstoð lækkað um helming á 40 árum
Aðstoð ríkustu þjóða heims til þróunarríkja hefur lækkað hlutfallslega um helming síðustu fjóra áratugi. Þróunaraðstoð nam að meðaltali um 0,24% af vergri landsframleiðslu (VLF) árið 2003, samsvarandi tæpum 5.000 krónum á mann, en stóð í 0,48% árið 1960. Þetta kemur fram í nýlegri skýrslu bresku mannréttindasamtakanna Oxfam.
Í skýrslu Oxfam, sem ber yfirskriftina Paying the Price, koma fram miklar efasemdir um að þúsaldarmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um þróun verði náð fyrir árið 2015 með þeirri aðstoð sem nú er veitt. Verði þróunaraðstoð ekki aukin um 50 milljarða bandaríkjadali (um 3000 milljarða íslenskra króna) og stór hluti skulda þróunarríkja felldur niður óttast Oxfam að afleiðingarnar verði að óbreyttu eftirfarandi:
- að fram til ársins 2015 muni börnum fjölga um 45 milljónir sem deyja ótímabærum dauðdaga;
- að árið 2015 hafi þeim börnum fjölgað um 247 milljónir sem þurfa að framfleyta sér á fjárhæð sem nemur minna en einum bandaríkjadal á dag (samsvarandi 67 íkr);
- að árið 2015 hafi þeim börnum sem ekki sækja skóla fjölgað um 97 milljónir;
- að þeim muni fjölga um 53 milljónir fram til ársins sem ekki hafa aðgang að viðunandi hreinlætisaðstöðu.
Árið 1970 urðu ríkustu þjóðir heims ásáttar um að verja 0,70% af VLF til þróunarsaðstoðar. Þeirra á meðal voru Bandaríkin, Japan, Bretland, Þýskaland, Frakkland, Ítalía, Kanada og Rússland. Nú, 35 árum síðar, er ljóst að ekkert þessara ríkja hefur staðið við gefin loforð, en samkvæmt Oxfam hefði vandkvæðalaust verið hægt að ná þúsaldarmarkmiðunum ef raunin hefði verið önnur. Aðeins 5 af 22 stærstu gjafalöndunum hafa náð 0,7% markinu og einungis Bretland hefur sett sér tímamörk í þessu sambandi. Með óbreyttu ástandi nær Kanada þessu marki árið 2025, Bandaríkin árið 2040 og Þýskaland árið 2087.
Heimild: http://www.bistandsaktuelt.com / www.oxfam.org



125 Reykjavík Heimilisfang: Þverholt 14 Sími: 545 8980 Bréfasími: 545 8985 Netfang: iceida@iceida.is