Enduruppbygging á Sri Lanka nemur 1,5 milljarði bandaríkjadala

Aðstoðaframkvæmdastjóri ÞSSÍ heldur utan til viðræðna við stjórnvöld um þróunarsamvinnu

3.2.2005

Stjórnvöld á Sri Lanka telja að kostnaður við uppbyggingu þar í landi eftir flóðahamfarirnar muni nema um 1,5 milljarði bandaríkjadala, samsvarandi rúmlega 90 milljörðum íslenskra króna. Árni Helgason aðstoðarframkvæmdastjóri Þróunarsamvinnustofnunar Íslands (ÞSSÍ) heldur utan í febrúarlok til að undirbúa tvíhliða þróunarsamvinnu Íslands við Sri Lanka, en 75 milljónum króna verður varið til verkefnisins á þessu ári.

Á heimasíðu stjórnvalda á Sri Lanka segir að Asísku og Japönsku þróunarbankarnir, ásamt Alþjóðabankanum hafi metið tjón af völdum hamfaranna og hver heildarkostnaður yrði við uppbyggingu í landinu. Matið er gert í náinni samvinnu við stjórnvöld. 

Heildarupphæðin vegna uppbyggingar er sem fyrr segir talin nema um 1,5 milljörðum bandaríkjadala, en af þeirri upphæð er gert ráð fyrir að um 1 milljarður fari í endurreisn íbúðarhúsa, í ferðaþjónustu, í sjávarútvegi og í samgöngum. Heildartjón er talið nema um 4,4% af vergri landsframleiðslu (VLF) en því til viðbótar er talin nauðsyn á lánveitingum upp á 500 milljónir bandaríkjadala til ýmissa verkefna.

Íslensk stjórnvöld hækkuðu framlög til þróunaraðstoðar á Sri Lanka í ljósi hamfaranna, en um nýtt samstarfsland ÞSSÍ er að ræða. Alls verður 75 milljónum króna varið til tvíhliða þróunaraðstoðar þar í landi á þessu ári og mun Árni Helgason aðstoðarframkvæmdastjóri ÞSSÍ halda utan í lok febrúarmánaðar til viðræðna við fulltrúa stjórnvalda. Tilgangur ferðar Árna er þríþættur: í fyrsta lagi mun hann undirbúa aðstoð ÞSSÍ við Sri Lanka, í öðru lagi mun hann vinna að undirbúningi milliríkjasamnings um þróunarsamvinnu landanna tveggja og í þriðja lagi mun hann undirbúa opnun umdæmisskrifstofu ÞSSÍ á Sri Lanka.

Nú er ljóst að um 31.000 manns fórust á Sri Lanka í hamfaraflóðunum, þar af tilheyrðu um 27.000 manns fjölskyldum sem höfðu lífsviðurværi sitt af fiskveiðum. Því til viðbótar er 6.300 manns enn saknað og um 443.000 manns misstu heimili sín.

Þá er talið, samkvæmt nýjustu áætlunum, að um 65% fiskveiðiflotans hafi eyðilagst.

 

Heimild: http://www.priu.gov.lk





Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica