Afhending heilsugæslustöðvar í Malaví

25.3.2002

Eitt stærsta verkefni ÞSSÍ til þessa, er uppbygging heilsugæslustöðvar og sjúkrahúss í Monkey Bay í Malaví (Monkey Bay Health Centre - MBHC). Lokið er við tvo af þremur byggingaáföngum - þ.e.a.s. þann hluta, sem tilheyrir heilsugæslustöðinni. Enginn búnaður var enn kominn á staðinn en gámur er hins vegar á leiðinni með ýmsan búnað frá Íslandi. Á árinu 2003 er áætlað að ljúka við þriðja og síðasta áfanga framkvæmdanna, þ.e. sjúkrahússhlutann ásamt því að þjálfa starfsfólk ofl.. Þegar verkinu lýkur flokkast MBHC undir "sveitarfélags" sjúkrahús (community hospital), sem er næsta sjúkrahússtig fyrir neðan fjórðungssjúkrahús (district hospital). MBHC er fyrsta "sveitarfélags" sjúkrahúsið, sem byggt er í Malawi samkvæmt framkvæmdaáætlun þarlendra heilbrigðisyfirvalda og því einskonar frumherja verk.

Í byrjun mars 2002 fór fram afhending þess hluta húsnæðisins, sem byggingu er lokið á, til innlendra heilbrigðisyfirvalda til rekstrar. Áformað hafði verið, að um yrði að ræða óformlega afhendingu þar sem sjúkrahússhlutanum er enn ólokið og einhver tími mun líða áður en hægt verður að taka heilsugæslustöðvar hlutann í notkun. Heilbrigðisyfirvöld í Malawí vildu hins vegar gera meira úr athöfninni og er það til marks um hve jákvæðum augum þau líta á þessa framkvæmd. Heilbrigðisráðherrann boðaði komu sína og auk hans komu yfirmenn úr ráðuneytinu, þingmenn, sveitarhöfðingjar, ættbálkahöfðingjar og aðrir virðingarmenn. Malawíska sjónarpið var mætt á staðinn og tók viðtöl bæði við Íslendinga og heimamenn.

Í ræðu sinni við athöfnina fór Heilbrigðisráherra Malawi fór miklum viðurkenningarorðum um framkvæmdina og samvinnuna við ÞSSÍ og íslenskt starfsfólk stofnunarinnar. Lagði hann áherslu á mikilvægu hinnar nýju heilbrigðisstofnunar, sem hann sagði að verða myndi fyrsta sinnar tegundar í landinu. Tók hann sérstaklega fram í ræðu sinni, að Malawar væru ákveðnir í að standa við sinn þátt í rekstri stöðvarinnar enda væri hér um lykilverkefni að ræða í heilbrigðismálum.



Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica