Leitað að ráðgjafa til starfa í Mósambík

15.2.2005

ÞSSÍ leitar nú eftir háskólamenntuðum sérfræðingi til starfa við rannsóknarstofur sjávarútvegsráðuneytisins í Mósambík.

Um starf ráðgjafa er að ræða sem veitir sjávarútvegsráðuneytinu í Mósambík aðstoð við uppbyggingu þriggja rannsóknarstofa í landinu. Ráðgjafinn mun starfa við hlið yfirmanna rannsóknarstofanna og veita þeim nauðsynlega aðstoð við að koma rekstri þeirra í stöðugt horf og undirbúa þær undir faggildingu skv. ISO 17025, ef til þess kemur. Jafnframt mun ráðgjafinn sinna nauðsynlegri þjálfun starfsmanna með áherslu á framkvæmd örverufræðilegra mælinga á fiski og skeldýrum.

Starfsstöð ráðgjafans verður í Mapútó, höfuðborg landsins, en hann mun einnig sinna verkefnum á tveimur öðrum stöðum í landinu.

Frekari upplýsingar um starfið er að finna á: http://www.starfatorg.is/lausstorf/nr/3498