Úrslit þingkosninga ógilduð í Namibíu

Endurtalning atkvæða fer fram samkvæmt dómi Hæstaréttar landsins

11.3.2005

Hæstiréttur Namibíu hefur ógildað úrslit þingkosninganna, sem fram fóru í landinu í nóvember síðast liðnum. Tveir stjórnarandstöðuflokkar véfengdu úrslitin og kröfðust þess að endurtalning atkvæða færi fram. Kosningarnar sjálfar eru hins vegar sagðar löglegar í dómi Hæstaréttar og þarf því ekki að endurtaka þær. Samkvæmt dóminum á endurtalningu að vera lokið í síðasta lagi 20. mars, einum degi áður en nýr forseti sem kjörinn var sver embættiseið.

Stjórnarandstöðuflokkarnir segja niðurstöðu Hæstaréttar mikinn sigur fyrir lýðræðið í landinu og að hún sýni sjálfstæði dómsvaldsins. Formaður landskjörstjórnar segir mikla vinnu framundan við endurtalningu 830.000 atkvæða og tíminn sem gefinn hafi verið sé naumur. Óljóst er á þessari stundu hvort endurtalning mun leiða til annarrar niðurstöðu en þeirrar sem nú liggur fyrir.

Stjórnarandstaðan sakaði SWAPO, ráðandi stjórnmálaafli landsins, um kosningasvindl, fullyrti að ólögmætum atkvæðaseðlum hefði verið stungið í kjörkassana, 85% kjörsókn hefði verið óeðlilega hátt hlutfall og 22 hálfbrunnir kjörseðlar sem fundust á víðavangi hefðu gefið tilefni til að ætla að óhreint mjöl væri í pokahorninu.

SWAPO vann yfirburðasigur í þing- og forsetakosningunum sem haldnar voru 21. nóvember 2004 og var Hifikepunye Pohamba kjörinn eftirmaður Sam Nujoma fráfarandi forseta. SWAPO leiddi baráttuna gegn yfirráðum Suður Afríku sem varð til þess að Namibía varð sjálfstætt ríki 1990. Enginn annar stjórnmálaflokkur hefur haldið um stjórnartaumana í landinu frá þeim tíma. 

Ekkert gefur tilefni til að ætla að hræringar í stjórnmálalífi landsins muni hafa áhrif á þróunarstarf ÞSSÍ í landinu.


Heimild: www.allafrica.com