Clinton á ný til Sri Lanka

23.3.2005

Bill Clinton fyrrverandi Bandaríkjaforseti hyggst heimsækja Sri Lanka á næstunni í þeim tilgangi að skoða uppbyggingarstarfið sem þar fer fram eftir hamfaraflóðin á síðasta ári og aðkomu Sameinuðu þjóðanna að því. Loforð um gríðarlegar fjárhæðir hafa borist stjórnvöldum á eynni, en vandasamt hefur hins vegar reynst að skipuleggja uppbyggingarstarfið á árangursríkan hátt og samhæfa starf fjölda stofnana, frjálsra félagasamtaka og einstaklinga.

Að ósk Hvíta hússins fóru Clinton og George Bush eldri, fyrrverandi forsetar Bandaríkjanna, um þau svæði sem verst urðu úti í hamfaraflóðunum skömmu eftir að þau höfðu riðið yfir á annan dag jóla. Tilgangur farar þeirra þá var að leggja mat á þörfina fyrir aðstoð og fara fyrir fjársöfnun til aðstoðar fórnarlömbum flóðbyglnanna í framhaldinu.

Strandbyggðir á Sri Lanka urðu mjög illa úti og er Erskine Bowles, formaður nefndar Sameinuðu þjóðanna um uppbyggingarstarf eftir hamfarirnar, staddur á eynni til að meta framgang mála þar. Hann sagði við blaðamenn að Clinton væri væntanlegur innan skamms til að hitta fulltrúa alþjóðastofnana og frjálsra félagasamtaka á staðnum og fara yfir þær áætlanir sem gerðar hafa verið.

Sem fyrr segir hafa stjórnvöld á Sri Lanka fengið loforð um mikinn fjárstuðning frá opinberum aðilum og félagasamtökum sem varið verður til uppbyggingarstarfsins. Vandinn felst hins vegar í því að samhæfa starf fjölda stofnana, samtaka, félaga og einstaklinga sem komnir eru til eyjarinnar til að veita aðstoð.

Árni Helgason aðstoðarframkvæmdastjóri ÞSSÍ fór nýverið til Sri Lanka þar sem hann ræddi við fulltrúa stjórnvalda um tvíhliða þróunaraðstoð við landið. Eins og fram hefur komið hækkuðu íslensk stjórnvöld framlög til þróunaraðstoðar á Sri Lanka í ljósi hamfaranna, en um nýtt samstarfsland ÞSSÍ er að ræða. Alls verður 75 milljónum króna varið til tvíhliða þróunaraðstoðar þar í landi á þessu ári. Stefnt er að því að ÞSSÍ opni umdæmisskrifstofu á Sri Lanka áður en langt um líður og hefji þróunarstarf í landinu í framhaldinu.

Heimild: www.priu.gov.lk