Mikil aðsókn að skákmóti
Hrókurinn, Skáksamband Namibíu, í samvinnu við ÞSSÍ, stóðu að öflugu skákmóti í Windhoek, höfuðborg Namibíu, laugardaginn 20. mars. Þátttakendur voru 66 talsins sem er gífurleg aðsókn sjálfa þjóðhátíðarhelgina þegar flestir landsmenn höfðu hugann við forsetaskiptin og gleðskapinn er þeim fylgdu. Klukkan átta laugardagsmorguninn var Wernhill Park Rapid skákmótið sett af Gísla Pálssyni umdæmisstjóra ÞSSÍ í Namibíu. Í aldursflokki barna sex til átján ára mættu 21 til leiks og var mikið um áhorfendur á mótsstað allan daginn. Tefldar voru sjö umferðir, en heimamenn höfðu mikinn áhuga á að fylgjast með stórmeistaranum Henrik Danielsen og eins var það helsta ósk þátttakenda að fá að tefla við hann, í mótinu sem skipaði alla sterkustu skákmenn Namibíu. Henrik er staddur í Namibíu ásamt Kristian Guttesen þar sem þeir hafa heimsótt skóla, spítala, fangelsi ásamt því að kenna ólympíuliðinu í skák.
Kanjanga Mukwena, 16 ára, sigraði í flokki unglinga og fast á hæla hans voru systurnar Stephné Swartz, 12 ára, og Celeste Swartz, 15 ára. Þau náðu öll fjórum af sjö vinningum sem verður að teljast framúrskarandi árangur á svona sterku móti. Hin kornunga og efnilega Stephné Swarts sigraði ennfremur í flokki kvenna.
Efsti heimamaðurinn, og þar með Wernhill Park Rapid meistarinn, var skákkennarinn Helmuth Leicher sem náði sex af sjö vinningum, en hann tapaði einungis fyrir stórmeistaranum. Í öðru sæti varð Otto Zandell Nakapunda og í því þriðja Klaus Roerkohl, en þeir náðu 5½ vinningi.
Öll börn fengu happdrættisvinninga við verðlaunaafhendinguna, sem voru skáksett, skákbækur og boli. Benedikt Ásgeirsson sendiherra Íslands hélt ræðu við tilefnið og veitti öll verðlaun mótsins.
ÞSSÍ, Skáksamband Namibíu og Hrókurinn standa einnig að stóru móti dagana 8. – 10. apríl þar sem verðlaunin fyrir hæsta heimamanninn verða ferð til Íslands með gistingu, þar sem sigurvegarinn fær einkakennslu hjá Henrik Danielsen, skólastjóra skákskóla Hróksins, og fær hann einnig tækifæri til að taka þátt í öflugu íslensku skákmóti. Henrik og Kristian verða í Namibíu fram að þessu móti og halda áfram að heimsækja skólana og breiða út erindið um skák.
Grein eftir Kristian Guttesen



Rauðarárstígur 27, 125 Reykjavík, sími: 545 8980 Bréfasími: 545 8985 Netfang: iceida@iceida.is