Nýr fjölmiðlafulltrúi ráðinn
Styrmir Guðlaugsson hefur verið ráðinn fjölmiðla- og kynningarfulltrúi Þróunarsamvinnustofnunar Íslands. Styrmir stundaði nám í sagnfræði við Háskóla Íslands og spænskunám í Sevilla á Spáni.
Styrmir hefur að baki áralanga reynslu sem blaðamaður á fréttablöðum og tímaritum, þar sem hann m.a. gengdi stjórnunarstörfum svo sem störfum fréttastjóra, aðstoðarritstjóra, ritstjórnarfulltrúa, ritstjóra og útgáfustjóra, auk þess sem hann hefur rekið eigið útgáfufyrirtæki. Að auki hefur hann mikla reynslu í bæði ritstjórn og hönnun á vefsíðum.
Styrmir tók við starfinu 15. ágúst síðastliðinn.



125 Reykjavík Heimilisfang: Þverholt 14 Sími: 545 8980 Bréfasími: 545 8985 Netfang: iceida@iceida.is