Fréttir frá starfsemi ráðuneyti kvenna og félagsmála í Mósambik
Mósambík apríl 2002 Hulda Biering
Félags- og kvennamálaráðuneytið í Mósambik.
Snemma á árinu 2000 var stofnuð deild innan félagsmálaráðuneytisins í Mósambík sem kölluð er kvennamáladeild og í kjölfar þess var ráðuneytið nefnt ráðuneyti kvenna-og félagsmála. Megin verkefni deildarinnar er að skilgreina, koma á framfæri og þróa verkefni sem styðja málefni kvenna og fjölskyldunnar almennt, en alltaf með jafnréttissjónarmið að leiðarljósi. Auk þess er hlutverk deildarinnar að halda utan um þær stofnanir jafnt opinberar og óopinberar, innlendar sem erlendar sem starfa að því að bæta hlut kvenna og fjölskyldna í landinu. Þróunarsamvinnustofnun Íslands tekur þátt í því að styrkja og byggja upp hina nýju deild. Þessi deild innan kvenna-og félagsmálaráðuneytisins opnaði nýja og glæsilega skrifstofu þann 13. mars síðastliðinn.
Starfseminni þar er skipt upp í þrjá meginþætti; fjölskyldudeild sem heldur utan um og kynnir verkefni sem og lög og reglugerðir er miða að því að styrkja fjölskyldur í landinu með sérstaka áherslu á að rétta hlut kvenna. Má þá nefna verkefni sem tengjast baráttunni gegn útbreiðslu alnæmis, verkefni sem vinna gegn heimilisofbeldi og verkefni sem styðja sérstaklega konur sem sem einar annast framfærslu heimilisins og uppeldi, eins og ekkjur og einstæðar mæður. Starfsmenn eru einnig til ráðgjafar öðrum stofnunum sem starfa að sömu markmiðum.
Í öðru lagi er þar starfandi þróunardeild sem heldur utan um og kemur á framfæri lögum og reglugerðum ráðuneytisins. Sú deild sér auk þess um að kynna og koma á framfæri framkvæmdaáætlun Sameinuðu Þjóðanna (SÞ) sem samþykkt var á jafnréttisráðstefnu SÞ í Beijing 1995, en frá þeim tíma hefur markvisst verið unnið að því að framkvæma áætlunina frá Beijing. Í þriðja lagi hefur jafnréttisnefnd landsins aðsetur í húsinu.
Kvennafrídagurinn í Mósambík 7. apríl 2002
Í Mósambík hefur kvennafrídagurinn verið í hávegum hafður síðan árið 1973 og er einn af opinberum frídögum landsins. Í tilefni af deginum þetta árið er sérstök dagskrá á vegum ráðuneytisins og annarra stofnana sem láta sig varða málefni kvenna í Mósambik.
Dagskráin hófst 1. apríl og í tvær vikur var staðið fyrir alls kyns uppákomum á hverjum degi til að minna á jafnrétti og stöðu kvenna í landinu. Fjölmiðlar tóku viðtöl og fjölluðu um og kynntu hin ýmsu verkefni. Fram komu einnig upplýsingar um það sem er að gerast í þinginu í jafnréttismálum landsins. Aðalhátíðarhöldin voru sunnudaginn 7. apríl. Þá var lagður blómsveigur að minnismerkinu á Hetjutorginu, til minningar um baráttu kvenna hér í borg og til heiðurs konum. Mörg verkefni og samtök fengu viðurkenningu þennan dag. Ein þeirra eru samtök, Ekkna og einstæðra mæðra, í hverfi númer fimm í Mapútó borg. Á þessum degi færðu samtökin móður fyrsta barnsins sem fæddist í hverfinu þeirra, gjafir, föt, rúmföt , hreinlætisvörur og moskítónet. Allar aðrar nýbakaðar mæður í hverfinu fengu einnig moskítónet fyrir fjölskylduna. Moskítónetin verja börn og fullorðna fyrir stungum moskítóflugunnar sem ber með sér m.a. malaríusmit
Þessi samtök Ekkna og einstæðra mæðra voru stofnuð fyrir sex árum af nokkrum konum í hverfi númer fimm. Þau voru að svara brýnni þörf, þar sem stór hópur kvenna, einstæðar mæður og ekkjur sem kallaðar eru höfuð fjölskyldunnar berjast við af miklum vanmætti að sjá fyrir sér og sínum. Samtökin styðja þennan hóp og veitir þeim fyrirgreiðslu og fræðslu. Í dag eru í þessum samtökum rúmlega 300 manns, ekkjur, ekklar og einstæðar mæður. Þar er kominn upp sterkur vísir að fullorðinsfræðslu, og er boðið upp á námskeið í saumaskap, bókhaldi, hænsnarækt. Einnig vinna þau að forvarnarstarfi með reglulegum fræðslufundum um heilsu og hvernig ber að varast sjúkdóma eins og malaríu og kóleru. Einnig eru starfandi í samtökunum sjálfboðaliðar sem ganga um hverfið og kynna mikilvægi forvarna og þá sérstaklega gegn alnæmi/eyðni Meðfram þessu er næsta verkefni samtakanna að ná til unga fólksins í hverfinu og þá sérstaklega til ungra verðandi mæðra.
Þróunarsamvinnustofnun styrkir þessi samtök og var fulltrúum stofnunarinnar í Mósambik boðið að taka þátt í hátíðahöldunum á kvennafrídaginn þann 7. apríl síðastliðinn.



125 Reykjavík Heimilisfang: Þverholt 14 Sími: 545 8980 Bréfasími: 545 8985 Netfang: iceida@iceida.is