Rigningar stöðugar í Mósambik og nágrannalöndum

13.2.2006

Regn hefur fallið jafnt og þétt í Mósambik og nágrannalöndum þess það sem af er febrúar. Þótt vatnsborð í stærstu ám í Mósambik sé enn yfir hættumörkum hefur það þó heldur rénað víðast hvar í landinu.

Uppskerubrestur hefur lengi verið nær árlegur viðburður í Mósambik og nágrannalöndunum Malaví og Namibíu en nú stefnir í bestu uppskeru í þessum löndum í sex ár. Vonast er til að úrkoma verði stöðug það sem eftir lifir af regntímanum sem stendur yfir til loka marsmánaðar, en af fenginni reynslu síðustu ára er þó ljóst að brugðið getur til beggja vona í þeim efnum. Síðustu ár hafa langir þurrkatímar komið inn í regntímabilið til skiptis við úrhellisrigningar og valdið uppskerubresti á stórum svæðum.