Stuðningur við heyrnarskerta í Namibíu
Stjórnvöld í Namibíu hafa í þróunaráætlun sinni (Vision 2030) sem gefin var út 2004 sett fram ákveðin markmið um að bæta þjónustu við fatlaða. Samkvæmt manntali frá 2001 eru um 4,7% íbúa landsins fatlaðir og þar af 21,4% heyrnarskertir eða heyrnarlausir. Fatlaðir mæta oft miklum fordómum sem hefur í för með sér mismunum og samfélagslega einangrun. Fötluð börn sækja oft ekki skóla og fáir kennarar eru þjálfaðir til að aðstoða og kenna fötluðum börnum.
Stjórnvöld í Namibíu fóru þess á leit við ÞSSÍ á síðasta ári að stofnunin myndi styðja skóla fyrir heyrnarskert börn School for Children with Hearing Impairements and Communication Difficulties. ÞSSÍ lét gera úttekt á mögulegu samstarfi í júní 2005 og niðurstöður úttektarskýrslunnar mæltu með að áhersla skyldi lögð á þjálfun starfsfólks að útbúa skólann tækjabúnaði til að kenna heyrnarskertum börnum.
Íslenskur ráðgjafi fer til Namibíu nú síðar í mánuðunum og mun dvelja í Namibíu í tvær vikur og þjálfa kennara við skólann. Markmiðið með þjálfuninni er að auka færni og kunnáttu kennaranna í að nota og kenna táknmál auk þess að kenna önnur fög á táknmáli. Einnig mun hann aðstoða þá við að skrifa námsskrá í táknmáli fyrir 1.-10. bekk og að þróa kennsluefni fyrir táknmál. Kennarar og nemendur munu fá þjálfun í að nota tölvur sem verða keyptar fyrir skólann og foreldrum og almenningi verður kennt að nota táknmál. Loks verður komið á samskiptum við aðra skóla utan Namibíu sem kenna heyrnarskertum.
Verkefnið mun standa yfir í tvö ár og ljúka í desember 2007. Íslenskur ráðgjafi mun heimsækja Namibíu tvisvar á ári hvort ár og vinna náið með kennurum og skólastjóra skólans í Namibíu.



125 Reykjavík Heimilisfang: Þverholt 14 Sími: 545 8980 Bréfasími: 545 8985 Netfang: iceida@iceida.is