Fullorðinsfræðsla í Úganda

2.3.2006

fullordinsfradsla_i_uganda1
Benedikt Ásgeirsson sendiherra tekur við gjöf frá fulltrúum Mokono-héraðs við upphaf verkefnisins

Frá því í apríl í fyrra hefur ÞSSÍ stutt við framkvæmd á hagnýtri fullorðinsfræðslu á eyjum Mukono héraðs í Viktoríuvatni í Úganda. Verkefnið hefur gengið vonum framar og í árslok 2005 voru 108 þorp af 164 á svæðinu með fullorðinsfræðslu og alls 162 fullorðinsfræðsluhópar starfandi með alls rúmlega 3000 nemendum. Upphafleg áætlun fyrir árið 2005 var að koma á laggirnar 90 hópum, en vegna þessarar miklu þátttöku og áhuga var ákveðið að bæta við rúmlega 70 leiðbeinendum sem þjálfaðir voru nú í janúar.