Ómarkviss uppbygging sjávarútvegs í Sri Lanka

20.3.2006

Beruwela
-

Rúmt ár er nú liðið frá því að flóðbylgjan skall á strendur við Indlandshaf og svo virðist sem enduruppbygging á sviði sjávarútvegs í Sri Lanka hafi farið fyrir ofan garð og neðan, ef marka má bréf sem sjávarútvegsráðuneyti Sri Lanka sendi hjálparsamtökum og aðilum í þróunarsamfélaginu á dögunum. Í bréfinu kemur fram að aðstoð þróunarsamfélagsins hafi verið ómarkviss og miðað í allt of miklum mæli að smíði á fiskibátum og veiðarfærum sem nú sé allt of mikið framboð af í landinu. Þar kemur einnig fram að úthlutun bátanna hafi verið handahófskennd og þeir gjarnan lent hjá aðilum sem ekkert hafa með báta eða fiskveiðar að gera. Jafnframt hafi margir bátanna einfaldlega verið illa smíðaðir og ekki hæfir til róðrar.

Í bréfinu er þeim tilmælum beint til aðila í þróunarsamfélaginu að þeir hætti þessum gjöfum þar sem þær geri einungis illt verra fyrir sjávarútveg landsins. Þær geri stjórnvöldum erfiðara fyrir að fylgjast með fiskveiðum og þar með erfiðara að tryggja sjálfbærni sjávarútvegs á Sri Lanka.