Alþjóðabankinn kynnir nýja áætlun gegn spillingu
Paul Wolfowitz, forseti Alþjóðabankans, kynnti nýja langtímaáætlun bankans um baráttu gegn spillingu í ræðu sem hann hélt í Jakarta í Indónesíu 11. apríl síðastliðinn. Wolfowitz sagði að Alþjóðabankinn hyggðist nota öll verkfæri sem hann hefði til að grynnka á spillingu í löndum sem bankinn veitir aðstoð. ,,Spilling er oft meginástæða þess að ríkisstjórnir virka ekki, því hún veikir bæði kerfið og markaðinn. Afleiðingarnar fyrir ríkisstjórnir og almenning eru lægri tekjur, færri fjárfestingar og meiri hagsveiflur” sagði Wolfowitz m.a. í ræðu sinni.
Alþjóðabankinn hefur ákveðið að auka styrki til umbóta á stjórnsýslu og dómskerfi þróunarríkja. og styrkja jafnframt frjálsa fjölmiðlun í ríkjum þar sem henni er ábótavant. Wolfowitz sagði þá Alþjóðabankann stefna að því að fylgja styrk- og lánveitingum sínum betur eftir með því að koma á fót eftirlitsteymum innan landanna sem þiggja styrki og lán frá hendi bankans. Hugmyndin er að Alþjóðabankinn vinni nánar með ríkisstofnunum sem með styrk- og lánveitingar bankans fara. Þannig geti bankinn bæði fylgst betur með hvernig styrk- og lánspeningum er varið og gerir þeim auðveldara með að meta árangur einstakra verkefna.
Wolfowitz og Alþjóðabankinn hafa þá ákveðið að auka samvinnu Alþjóðabankans við rík lönd, þróunarbanka og aðra aðila sem hafa beina hagsmuni að því að uppræta peningaþvott og spillingu bæði í opinbera og einkageiranum. Þessi aukna samvinna felst aðallega í auknu upplýsingaflæði milli aðila og samræmdum aðgerðum gegn þeim fyrirtækjum og stofnunum sem stundi peningaþvott og aðra fjárglæpastarfsem.
Wolfowitz sagði að lokum að árangur næðist ekki yfir nótt en að hann væri mögulegur með vilja ríkisstjórna og almennings til umbóta.
Heimild: www.worldbank.org



Rauðarárstígur 27, 125 Reykjavík, sími: 545 8980 Bréfasími: 545 8985 Netfang: iceida@iceida.is