Nýr verkefnastjóri fiskimála hjá ÞSSÍ í Reykjavík

9.8.2006

Geir Oddsson, auðlindafræðingur, hefur hafið störf sem verkefnastjóri fiskimála hjá ÞSSÍ, með aðsetur í Reykjavík. Geir er með gráðu í líffræði frá Háskóla Íslands og gráður í fiskifræði og auðlindastjórnun frá University of Washington í Seattle, BNA. Geir hefur síðustu tíu ár unnið að fjölda verkefna á sviði umhverfis- og auðlindamála í þróunarlöndunum, fyrir m.a. ÞSSÍ, Alþjóðabankann, Sameinuðu þjóðirnar, einkafyrirtæki og frjáls félagasamtök. Geir kemur til ÞSSÍ frá Háskóla Íslands, þar sem hann hefur verið forstöðumaður Umhverfisstofnunar HÍ og síðan stofustjóri Auðlindastofu Stofnunar Sæmundar fróða um sjálfbæra þróun og þverfræðilegar rannsóknir og Umhverfisstjóri HÍ auk þess að sinna kennslu og umsjón nemenda á meistarastigi.