Opinber heimsókn félagsmálaráðherra til Malaví og opnun sendiráðs Íslands í Lilongwe
Fjögurra daga heimsókn félagsmálaráðherra til Malaví lauk 2. júlí með fundi ráðherra og forseta landsins, Dr. Bingu wa Mutharika. Á fundinum ræddu þeir þróunarsamvinnu landanna sem staðið hefur yfir í 15 ár. Forsetinn lagði áherslu á mikilvægi félagsmála og að Malaví hefði mikla þörf fyrir stuðning á því sviði. Félagsmálaráðherra lýsti yfir vilja á áframhaldandi stuðningi íslenskra stjórnvalda við Malaví.
Félagsmálaráðherra átti sömuleiðis fund með ráðherra jafnréttis og félagsmála, frú Joyce Banda. Á fundinum undirrituðu ráðherrarnir viljayfirlýsingu um samskipti ráðuneytanna og mögulega aðstoð Íslendinga.
Tímamót urðu í samskiptum landanna er félagsmálaráðherra opnaði við hátíðlega athöfn sendiráð Íslands í höfuðborg landsins Lilongwe þann 30. júní.
Þá afhenti ráðherra, fyrir hönd Þróunarsamvinnustofnunar Íslands, menntamálayfirvöldum nýbyggðan barnaskóla í Msaka þorpi þar sem meira en 1000 börn munu njóta menntunar við mun betri aðstæður en fyrr.
Malaví er eitt af 15 fátækustu ríkjum heims. Það er eitt helsta samstarfsland Þróunarsamvinnustofnunar Íslands og nýtur mestrar aðstoðar þeirra landa sem stofnunin starfar í.



125 Reykjavík Heimilisfang: Þverholt 14 Sími: 545 8980 Bréfasími: 545 8985 Netfang: iceida@iceida.is