Fullorðinsfræðsla í Kalangalahéraði í Úganda

2.12.2002

Fullorðinsfræðsla í Kalangalahéraði í Úganda.
Drífa Kristjánsdóttir
Dags.: 02.12 2002

Kalangalahérað liggur miðsvæðis í Úganda og fiskimannasamfélögin á Ssese eyjum í Viktoríuvatni tilheyra því.
Þann 14. nóvember síðastliðinn var í fyrsta skipti haldið upp á alþjóðlegan dag fullorðinsfræðslu í Kalangalahéraði. Starfsmenn Þróunarsamvinnustofnunar Íslands (ÞSSÍ) notuðu  tilefnið til að ýta úr vör fyrsta fullorðinsfræðsluverkefninu sem ÞSSÍ veitir stuðning í Úganda.
Fimmtíu kennara voru útskrifaðir, en þeir höfðu tekið þátt í tveggja vikna námskeiði. Á námskeiðinu fór fram kennsla í að nota námsefni sem hafði verið þróað sérstaklega fyrir þetta verkefni. Kennararnir fengu greidda smá þóknun fyrir störf sín við fullorðinsfræðsluna undanfarna mánuði og voru þau leyst út með reiðhjólum til þess að auðvelda þeim kennslustarfið. 
Allir nemendur sem vettlingi gátu valdið voru mættir til að taka þátt í hátíðarhöldunum og höfðu margir bekkir æft söngva og dans í tilefni dagsins. Einnig voru sýndir leikþættir og öðrum gestum gefin innsýn inn í hvernig kennslan fer fram.
Stjórnmálamenn héraðsins og háttsettir opinberir starfsmenn voru viðstaddir hátíðarhöldin. Þó margar ræður hafi verið haldnar var þetta fyrst og fremst dagur nemanda og kennara fullorðinsfræðslunnar. Eftir að formlegri dagskrá lauk var boðið upp á mat og drykk og síðan dunaði dansinn fram eftir nóttu. Var það almennt álit að vel hafi tekist til og eflaust hefur hróður fullorðinsfræðslunnar farið víða í kjölfarið.
Undirbúningur verkefnisins hófst í júní fyrr á þessu ári. Fyrsta verkið var athugun á þörf fyrir fullorðinsfræðslu í héraðinu. Síðan var námsefnið þróað, kennarar þjálfaðir og úttekt gerð á því hversu margir nemendur  hefðu áhuga á að stunda námið.
Næsta skref verður  langtímaáætlun um hvernig framboð á fullorðinsfræðslu í héraðinu verður aukið.  Einnig munu menn gera áætlanir um á hvern hátt hægt verði að halda nemendum við efnið með því að bjóða upp á námskeið og fræðslu sem er aðgengileg og hefur gildi fyrir daglegt líf á eyjunum.
Í janúar er fyrirhugað að hefja útsendingar vikulegra útvarpsþátta til að styðja við verkefnið og verið er að hanna námsefni sem á að þjálfa fólk í reikningi, bókhaldi og rekstri smáfyrirtækja. Þó aðal atvinnuvegir eyjaskeggja sé landbúnaður og fiskveiðar, kom fram í þarfagreiningunni að flestir líta svo á að þau stundi viðskipti af einhverju tagi og vildu fá fræðslu þar um.
Gert er ráð fyrir að   námsefnið sem lýtur að viðskiptum og bókhaldi verði tilbúið á fyrri hluta næsta árs og verður það þá kennt til hliðar við hina hefðbundnu lestrar og skriftarkennslu. Hugmyndin er að námskeiðið nýtist þeim sem þegar kunna að lesa og skrifa, og geti jafnframt tekið við þeim nemendum sem útskrifast úr lestrarkennslunni. Eftir því sem verkefnið þróast áfram verður brugðist við þörfum og væntingum íbúanna fyrir frekari námskeið og fræðslu.





Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica